Trausti Grundfjörð Björgvinsson

Trausti ber nafn með réttu, hann er traustur vinur.  Ég hef þekkt Trausta síðan ég var smá krakki.  Hann er vinur eldri bræðra minna og var því oft inn á heimili mínu þegar ég var krakki.  Trausti er alltaf velkominn á mitt heimili og hefur hann einnig alltaf tekið vel á móti mér, þegar ég hef litið inn til hans.  Trausti er mikill dýravinur og má helst ekki heyra af því að menn séu að drepa dýr.  Þegar ég fór fyrsta skipti á netaveiðar, þá með Heiðari Björns sem skipstjóra og vorum við Trausti hásetar.  Þeyr kenndu mér margt og var ákaflega gaman að vera með þeim til sjós.  Síðar kom Trausti með mér síðustu 2 túranna mína á Runólfi áður enn hann var seldur til Rússlands og svo núna í endaðan júní 2002 kom hann með mér á netaveiðar á Grundfirðingi SH-24.  Við fiskuðum vel út á Trausta í netin í Nesdýpi, vorum með 37tonn í 1 1/2 lögn og vill ég þakka Trausta fyrir góðan túr.