Torfi Freyr Alexandersson
Torfi er drengur góður og hefur reynst mér góður vinur. Ég man
ekki hvenær við hittumst fyrst en við hljótum að hafa verið afskaplega
ungir. Torfi hefur alla tíð verið hörku duglegur og gert allt sem hann
tekur sér fyrir hendur af miklum krafti og dugnaði. Hann hefur lent í
mörgum lífsins raunum t.d. bjargaðist hann er Krossnesið sökk, hann hefur
farið útbyrðis á línubát og ýmislegt fleira, en samt heldur hann áfram
að vera á sjó. Það var meira að segja á tímabili sem öll skip sem
hann réði sig á voru seld, lagt eða jafnvel brunnu stuttu eftir að hann
réði sig á þau. Torfi flutti til höfuðborgarinnar fyrir nokkrum árum
og er hans stundum saknað hér í Grundarfirði.

Þetta eru Torfi og Renata konan hans.