Rúnar Russel
Rúnar býr í Lúxemborg ásamt fjölskyldu sinni, Þóru eiginkonu sinni og þrem sonum, Daða, Ara & Ottó. Rúnar og Þóra bjuggu fyrst saman að Sæbóli 11, Grundarfirði. Þau keyptu húsið af mömmu og pabba. Rúnar starfaði á Farsæl SH-30 frá Grundarfirði. Þau eignuðust þríbura 5.des.1990 sem fengu nöfnin, Daði, Ari & Ottó.

Þríburarnir mjög ungir (veit ekki hver er hvar á myndinni)
Síðan fluttu þau til Reykjavíkur þar sem Rúnar fór að læra bifvélavirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík, sem undanfara fyrir flugvirkjanám. Síðan fluttu þau til Vesteras í Svíþjóð og Rúnar lærði þar flugvirkjun. Að námi loknu fór hann að vinna hjá Atlanta í Manchester á Englandi. Síðar fór hann að vinna hjá Atlanta í Madrid á Spáni og í framhaldi af því fluttu þau þangað. Núna er Rúnar farinn að vinna hjá einhverju flugflutninga fyrirtæki (Cargo), og fjölskyldan er flutt til Lúxemborgar.
Smellið á myndirnar hér að neðan til að fá stærri útgáfu:
Strákarnir í húsdýragarðinum
Mamma með barnabörnin sín.
Mamma með þríburana þegar þeyr voru litlir
Þríburarnir þegar þeyr bjuggu á Sæbóli 11
Þóra mágkona mín, þegar hún kom í heimsókn til Íslands 29.12.1996
Ottó, Daði & Ari við Effelturnin í París.
Daði, Ottó & Ari í Euro Disney
Daði, Ari & Ottó
Ari, Ottó & Daði
Daði, Ari & Ottó við bílinn hennar Þóru.
Bílinn hennar Þóru.
Peugeot 206 cabriolet blæjubíll.
Svona bíll er ekki til á Íslandi.