nafni.jpg - 24Kb A. Bjarki Gestsson (ex bóndi, en núna kallaður "foringinn" í vinnunni)
Ég hitti nafna fyrst 25.apríl 1995 um borð í Runólfi SH-135 og hafði hann unnið þar í um eitt ár þegar ég byrjaði þar. Við urðum fljótt félagar, síðar vinir þar til við urðum illaðskiljanlegir. Við höfum átt margt sameiginlegt í gegnum tíðina, t.d. áttum við báðir mága sem hétu Vignir, báðir bárum við nafnið Bjarki, höfðum báðir verið í skóla að Hólum í Hjaltadal, foreldrarnir fluttu út frá okkur, svo síðar áttum við báðir heima á Borgarbraut, hann nr. 9 ég 6 (alveg eins tölur), vorum báðir einhleypir, ferðuðumst dáldið saman til útlanda, erum háðir tölvum, spilum golf og þurftum helst að sjá eða heyra í hvor öðrum á hverjum degi.
En nú er öldin önnur og hann Bjarki minn er ekki lengur minn, þar sem hún Brynja Guðnadóttir hefur stolið honum frá mér og giftist honum 5. júlí 2003.
Ég vill því óska þeim góðu og gæfuríku hjónabandi.  p.s. Ég má nú samt enn kíkja í kaffi annað slagið.

Þessi mynd er af Bjarka við eldhúsborðið heima hjá honum og Brynju.

Þarna er Bjarki að hella bræddum smjörva yfir pop kornið um borð í Grundfirðing.  Ekki prófa þetta heima hjá ykkur!!!!