Louise Maria Johansson
Louise eða Lovísa eins og sumir hafa kosið að
kalla hana, er í alla staði frábær stelpa. Hún var kærastan mín í
rúmt ár og eigum við mjög margar góðar minningar saman. Louise er
nýlega flutt til Svíþjóðar til að mennta sig meira. Louise er fædd
og uppalin á eyjunni Gotlandi sem tilheyrir Svíþjóð (Lína langsokkur
er þaðan líka). Hún kom hér að vinna sem au-per í endaðan maí
2000, en ég kynntist henni ekki fyrr en vorið 2001. Svo um haustið 2001
fór hún að starfa sem sjúkraliði á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi, fram
á sumar. Ég sakna þessarar lífsglöðu, skemmtilegu og elskulegu
stelpu sem var alltaf hlæjandi. Það er mikill missir að hún skuli
vera farinn af landi brott. Því miður fyrir heiminn að það skuli
aðeins vera til eitt eintak af henni. Ég óska henni góðs gengis í nám og
með nýtt líf í nýjum heimabæ sínum Umea í Svíþjóð.