Haraldur R. Magnússon
Við Haraldur vorum bekkjarfélagar í grunnskóla og kölluðum við hann ýmist Haraldur, Halli eða Robbi. Við höfum alltaf verið vinir en ég held að eftir að hann kom hafði lokið námi í VMA á Akureyri og ég hætt í Iðnskólanum í Rvk. vorum við einu strákarnir úr bekknum í Grundarfirði og vorum við því mikið saman. Svo fórum við saman í ógleymanlega ferð til Benidorm ´94, vorum saman á sjó á Fanney SH-24 yfir línuvertíð, svo kom Haraldur haustið ´95 yfir á Runólf SH, þar sem ég hafði starfað eftir línuna. Við það vorum við meira saman og fórum t.d. til Færeyja & Barcelona ´96. Haraldur flutti svo síðar frá foreldrum sínum til Reykjavíkur til að stunda nám í Vélskólanum. Það gekk ekki betur hjá honum að flytja að heiman en svo að foreldrarnir voru fljótlega fluttir inn á hann í Rvk. Hann varð þá svo heppinn að kynnast skemmtilegri og góðri einstæðri móður sem átti íbúð með engu gestaherbergi. Núna búa þau saman í nýrri íbúð sem þau keyptu sér og eru þau búinn að eignast son saman og gifta sig. Ég reyni að heimsækja þau helst eins of og ég fer til Rvk. en þau eru alltaf velkominn til mín í Grundó.

Á áramótum 1996 eða 97

Þarna er Haraldur 15-16 ára