gummip.jpg - 12KbGuðmundur Pálsson
Gumma kynntist ég í gegnum Mæju Runna og svo þegar hann fór að vinna á Runólfi SH-135. Gummi er bróðir bekkjarfélaga og æskuvinar míns, þannig að ég vissi hver hann var löngu fyrr. Gott er að eiga Gumma sem vin og félaga því hann er 100% vinur í einu og öllu. Gummi hikar ekkert við að skamma mann ef honum finnst maður vera að gera eitthvera vitleysu og hann er alltaf tilbúinn að hjálpa og gera greiða, því er ekki hægt að neita þessum dreng um greiða eða hjálp að neinu tagi. Þó maður hitti Gumma sjaldan eða heyri sjaldan í honum þá er hann alltaf vinur, hann er aldrei falskur, hann lýgur aldrei, nánast alltaf í góðu skapi og hann er allstaðar vinsæll þar sem hann kemur.  Gummi á í dag mjög sæta og fína kærustu úr Stykkishólmi.  Þau eru bæði í námi í Reykjavík og búa við hliðina á vélskólanum.

mynd af Gumma frá því við vorum saman í París