Björn K. Ásgeirsson
Við Bjössi urðum fyrst kunningjar ´93 eða ´94, þegar við vorum báðir trillukallar. Svo þróaðist það í að vera félagar þegar ég fór að kynnast jafnöldrum hans betur og loks urðum við vinir þegar hann fór að vinna með mér á Runólfi. Svo finnst mér sem við séum alltaf að verða betri og betri vinir eftir því sem tíminn líður. Bjössi er draumafélaginn minn í framtíðarfyrirætlun minni í að eignast bát og gera út. Hann er duglegur, hraustur, traustur, samviskusamur og vinur vinna sinna.
Nóv. 2003
Ég og Bjössi keyptum okkur saman bát vorið 2002. Okkur
fannst enginn grundvöllur vera lengur fyrir því að kaupa fiskibát, svo við
keyptum okkur tæplega 6m langan leikbát
m/ kerru af manni í Stykkishólmi. Svo keyptum við af
Björgunarsveitinni á Húsavík 70hö. Evinrude
3cyl, tvígengis utanborðsmótor. Með mótornum fylgdi svo annar eins
mótor sem var bilaður.

Bjössi
í bíl á Portugal

Eyrún
Ösp, kærastan hans Bjössa

Andri
Freyr sonur Bjössa & Eyrúnar.