Bergdís Rósantsdóttir
Er æsku vinkona mín og er núna í sambúð með einum af mínum bestu vinum.  Það er óneitanlega gott að vita að hún hefur náð sér í mjög góðan mann.  Það var nú reyndar soltið skrítið fyrst þegar Gaukur, vinur minn til margra ára, og Bergdís vinkona mín til enn fleiri ára fóru að vera saman en þegar til lengri tíma er litið þá er bara auðveldara að viðhalda vinskapnum.  Bergdís og Bryndís systir hennar voru alltaf  stelpurnar í næsta húsi þegar ég var lítill.  Svo flutti ég frá Grundarfirði í tvö ár og kom svo til baka á annan stað í Grundarfirði, þá fluttu Bergdís og Bryndís ásamt foreldrum í næsta hús við hliðina á mér, líklega til að geta áfram verið stelpurnar í næsta húsi.  Núna búa Gaukur, Bergdís og Elberg Logi í Kópavogi.