Baldvin Arngrímsson
Ég hitti Balda fyrst fyrir svo mörgum árum að elstu menn muna ekki svo langt aftur í aldir. Baldi er jafn frammt elsti vinur minn og er hann fæddur á fyrri helmingi síðustu aldar. Þess vegna hafa vinir hans gefið honum titillinn "sör" og er hann alltaf kallaður í dag "Sör Baldvin". Baldi er mjög rólegur og góður maður, hann elskar "Ferrari" og alla aðra Ítalska bíla. Baldi er jafnframt gagnagrunnur um upplýsingar varðandi ítalska bíla. Maður er alltaf velkominn til Balda og er hann ákaflega gestrisinn, kurteis og neitar aldrei ef honum er boðinn bjór. Ef ég ætti að lýsa Balda í fjórum orðum væru þau "OF GÓÐUR VIÐ ALLA".