28.12.2003
Núna er ég búinn að setja inn myndir frá djammi í Stykkishólmi á föstudaginn,myndir frá hlaðborði á Krákunni 19.des. og safn af myndum frá Grundfirðingi SH-24. Hægt er að nálgast myndirnar úr valmyndinni til vinstri á síðunni. Smellið á Myndasöfn > Stykkishólmur, Aðventukrásir, Myndir af sjónum.
Svo er litla sæta frænka mín, Viktoría Ása Ólafsdóttir, kominn með heimasíðu. Tengingin á hana er hér að ofan og það er líka hægt að smella á myndina hérna að neðan.
27.12.2003
Jæja, þá er maður loksins kominn heim í Grundó. Ég
fékk svakalega góða þjónustu á jólunum á hótel MÖMMU og svínasteikin
hennar mömmu var svo rosalega vel heppnuð að við fjögur kláruðum 2,5kg
steikina.
Svo á jóladag, fórum við í matarboð heim til Helgu (systir Friðjóns) & Ragga (eiginmaður Helgu). Þar komu fjölskylda hans Friðjóns, þ.e. dætur hans Friðjóns, makar þeirra og börn. Þar borðuðum við Hangikjöt og svið, ásamt svo mjög góðum eftirréttum.
Svo í gær 2.jóladag þá snæddi ég úrbeinaðan hamborgahrygg (fékk hann í jólagjöf), brúnaðarkartöflur o.fl. Þetta átum við pabbi (Stormurinn) og drukkum með þessu rauðvín sem ég fékk einnig í jólagjöf.
Svo um kl. 1 eftir miðnættið var för minni heitið á Fimm fiska í Stykkishólmi til að hlíða á Alla & Heimir skemmta gestunum. En þegar ég mætti á staðinn voru þeir hættir að spila vegna þess að mixeirinn bilaði hjá þeim. Af þessum sökum er ég ákaflega vonsvikinn, en þetta reddaðist nú samt allt saman og var þá bara gera gott úr hlutunum og halda áfram að skemmta sér. Svo endaði ég í partíi hjá Gunnari Már (held hann búi þarna). NOKKRAR MYNDIR FRÁ KVÖLDINU
Svo kom ég bara heim í dag og fór í kaffi til Palla danska vinar míns og var þar tekið á móti mér með nýju kaffi og flottu hlaðborði (alltaf tekið vel á móti manni þar). Ætli ég fari svo ekki til Nafna á morgunn, þar er örugglega nýbakað með kaffinu, nema Bjarki sé búinn að éta það allt.
GLEÐILEG JÓL!!! ![]()
WESOLYCH SWIAT!!! ![]()
GOD JUL!!! ![]()
JOYEUX NOEL!!! ![]()
MERRY CRISTMAS!!! ![]()
GLÆDELIG JUL!!! ![]()
24.12.2003
Smá vísindi: Hvað er logn? ….Þá hreyfist
loftið á sama hraða og jörðin snýst!! Athugið þetta. Með öðrum orðum,
þegar okkur finnst vera logn er í raun talsverður vindur. Við finnum bara
ekki fyrir honum þar sem hann er á sama hraða og jarðsnúningurinn. Þetta
þýðir það að ef lognið er kyrrt, þá meina ég raunverulega kyrrt, þá
finnst okkur vera vindur.
(heimild: www.dalurinn.is/siggistormur.asp
úr viðtali við: Sigurð Þ. Ragnarsson (Siggi Stormur)
Meiri speki: Hvaðan kemur lognið? (ath. lognið skrifað með litlum upphafsstaf)
Það er logn í dag, en það var ekki logn í gær, og því
hlýtur lognið að hafa komið. Og ef lognið, sem er hér í dag en var hér
ekki í gær, hefur komið, þá hlýtur það að hafa komið einhversstaðar
frá. Og þá liggur beint við að spyrja: Hvaðan kom lognið?
Það hefur verið rotta undir rúminu mínu í dag, en það var engin rotta
undir rúminu mínu í gær, og því hlýtur rottan að hafa komið. Og ef
rottan, sem er undir rúminu mínu í dag en var þar ekki í gær, hefur komið,
þá hlýtur hún að hafa komið einhversstaðar frá. En hvaðan kom rottan?
Rottan undir rúminu mínu hefur kannski komið í gegnum rifuna í gólfinu, eða
inn um opnar svaladyrnar, nema óforskammaðir prakkarar hafi komið henni þar
fyrir. Þá var það að vísu ekki rottan sem kom, heldur var komið með
hana. En allt um það, ég veit hvernig ég á að snúa mér í svona efnum.
Á morgun hendi ég rottunni út um gluggann.
En hvað með lognið. Í gær var austan rok. Hvaðan kom það? Vindurinn blés
að austan, þess vegna var þetta austan rok en ekki sunnan rok. Rok er bara
hreyfing loftmassa og austan rok er hreyfing loftmassa frá austri til vesturs.
En vindurinn, sjálf hreyfing loftmassans frá austri til vesturs, kom ekki að
austan. Hvaðan kom þessi hreyfing eiginlega? Lægðin sem olli rokinu kom frá
Þanghafinu, og fór í norð-austur fyrir suð-austan land. Ekki langt frá
Halamiðum. En lægðin er ekki rokið. Og svo þegar lægðin var farin hjá,
þá lægði smám saman. Loks kom logn. Og hvaðan kom lognið? Það kom í kjölfar
lægðarinnar, það sagði veðurfræðingurinn í sjónvarpinu að minnsta
kosti, en lognið, sem er ekkert annað en hreyfingarleysi í loftmassanum, kom
samt ekki á hraðri siglingu sunnan úr Þanghafi. Nei, orðin blekkja okkur.
Við spurningunni um það hvaðan lognið kom er ekki til neitt flókið svar,
svarið er eins einfalt og hugsast getur: Það bara kom.
Þegar slökkt er á kertinu, þá fer eldurinn. En hvert fer eldurinn? Hann
bara fer. Lognið bara kemur og eldurinn bara fer. Þannig er lífinu líka farið.
Þegar við fæðumst þá kemur það, og það bara kemur, og þegar við
deyjum þá fer það, og það bara fer. Rotta er hlutur, og þess vegna getur
hún ekki komið nema koma einhversstaðar frá, og þess vegna geta líka óforskammaðir
prakkarar veitt hana í fötu og komið fyrir undir rúmi hjá saklausum
heimspekingum. En logn, eldur og líf eru ekki hlutir. Þetta eru eiginleikar
sem eru þannig að ef þeir koma, þá bara koma þeir. Og þegar þeir fara,
þá bara fara þeir.
Heimild: http://visindavefur.hi.is/svar.asp?id=3319 Vísindavefur Háskóla Íslands, Ólafur Páll Jónsson, PhD í heimspeki
23.12.2003
En er ég ekki kominn í jólaskapið. Enn og aftur var hel..... Micr...ft hugbúnaðurinn að hrella mig illilega. Núna er ég búinn að tapa út öllum póstinum sem ég hef fengið og þið sent mér, nafnakránni með símanúmerum, netföngum og öðru. Að vísu á ég afrit af nafnaskránni í turninum, Acorn-inum & GSM-símanum mínum. Ég er líka búinn að missa uppsetningarnar í póstforritinu þannig að ég hef ekki aðgang að póstinum mínum á lognid@lognid.is nema gegnum GSM-símann minn. Svo ef þið sendið eitthvað meira en texta þá sendið á lognid@here.is þangað til ég verð búinn að laga þetta. Þarf væntanlega bara setja öll notendanöfn og aðgangsorð á blað og fela síðan undir kodda, eða hætta bara nota hugbúnað frá helv... Microsoft. Í þessum skrifuðu orðum var rafmagnið að detta af Grundarfirði, því er gott að vera með fartölvu en núna var rafmagnið að koma inn aftur. Hvað er eiginlega að gerast?????? Ég er búinn að eiga Acorn tölvuna mína lengur enn elstu menn muna og hefur stýrikerfið í henni aldrei böggað mig eins og blessað PC-draslið. Það hefur mörgum sinnum sannast að aðgangur að peningum og góð markaðssetning skiptir meira máli en að selja góða vöru og er Microsoft besta sönnun þess.
Ég var að taka
saman aflann á Grundfirðingi SH-24 í haust og var hann eftirfarandi:
ágúst
= 65.224 kg
september = 169.404 kg
október
= 165.847 kg
nóvember = 161.902 kg
desember = 156.590
kg
Alls línuafli = 718.967 kg
Net Jan-jún.=698.838
kg
Alls á árinu= 1.417.805 kg
Annars
er ekkert að frétta. Fer í Reykjavík í dag og þá byrjar auðvitað
geðveikin. Í Grundó er allt að verða snjólaust og verða því
væntanlega rauð jól hérna. Ég var að lesa um hrakfarirnar hans Tomma
á blogginu hans og skil ég vel að drengurinn hafi verið orðinn geðv.....
á Reykjavík. Ég ætla að koma vestur aftur 2.jóladag og borða þá
með Storminum í Stykkishólmi. Svo er fyrirhugað að fara á 5 fiska og
hlusta á Alla & Heimir skemmta fyllibyttunum. Svo hugsa ég að ég fari á
sýningu hjá leikfélaginu Grímnir í Stykkishólmi 27. eða 28. des. en þar
mun áðurnefndur Alli fara með eitt af aðalhlutverkunum (enda skemmtilegur
maður).
Hérna mun væntanlega ekkert verða skrifað aftur fyrr en ég kem næst til Grundarfjarðar, svo ég býð ykkur öllum sem þetta lesið Gleðilegra jóla & farsældar á komandi ári!!!!!!!!!
ykkar einlægur
Lognið Stormsson
22.12.2003
Jæja, núna er ég búinn að jafna mig á fartölvunni og ýmsum öðrum kvillum sem hafa hrjáð mig eftir helgina. Á föstudagskvöldið fórum við úr áhöfninni á Grundfirðing út að borða á "aðventukrásir" á Krákunni og var þar alveg meiriháttar góður matur. Við byrjuðum reyndar kvöldið á fordrykk heima hjá Bjarna vélstjóra en hann var svona eiginlega að halda upp á 30 ára afmælið sitt sem var fyrr á árinu.

Bent bróðir mætti til Bjarna, ásamt ýmsum úr áhöfn Helga SH-135.

Og Fjölnir fór í sparifötinn.
Eldra efni hér að neðan:
Vika 52 (22.12-28.12)
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: