Til baka á forsíðu

Á leið til Grundarfjarðar 18.08.2003 kl. 23:00

Núna erum við búnir að draga í dag.  Það kvesti aðeins eftir hádegi en lægði svo aðeins um kl. 21.  Það var allt í lagi fiskirí í dag.  Jónas skipstjóri mætti út á dekk þegar rétt rúmlega einn rekki var eftir og fór á rúlluna, meðan Kjartan stýrimaður stjórnaði skipinu.  Bjarki bóndi var í lestinni þegar Jónas tók við rúllunni og var mjög undrandi þegar hann kom upp.  Hér eru nokkrar myndir úr prufutúrnum.  SMELLA HÉR!!!!

Í Kolluál 17.08.2003 kl. 21:10

Núna vorum við að klára draga 27 rekka af línu, sem er öll línan okkar.  Við byrjuðum kl. 5 í morgun og hefur þetta því tekið 16 klst.  Ég veit ekki hver dags aflinn er, en hann er a.m.k. meiri en samanlagður afli síðustu tveggja daga.  Í dag sunnudag eldaði ég hrygg og læri í hádeginu en síðan svínakjöt í súrsætri sósu í kvöldverð.  Ég sveik strákanna um að fá egg og beikon í morgun.  Þetta er gott í bili, ég nenni ekki að skrifa meira af gagnslausum upplýsingum hérna og ætla ég því bara að fara leggja mig.  Góða nótt!!!

Á leið í Kolluál 16.08.2003 kl.21:30

Núna erum við búnir að leggja og draga línunna tvisvar sinnum, fyrst 16 rekka og svo 22 rekka.  Línukerfið er allt að virka vel og mannskapurinn að ná tökum á þessum nýja veiðiskap.  Að vísu hefur fiskiríið ekki verið upp á marga fiska.  Það var reyndar ekki reiknað með neinu fiskiríi heldur átti þetta aðalega að vera kennslu og þróunarvinna.  Það hafa reyndar komið upp fáein minniháttar vandamál sem teljast eðlilegur hluti af barnaveiki eftir breytingar á skipum.  T.d. dettur smáfiskur niður á dekkið við fyrsta færibandið í vinnslulínunni og ekki helst nægilegt frost í beitukælinum og verða þessi atriði löguð þegar við komum í land.
En stærsta og erfiðasta vandamálið sem við eigum við að etja er allt of mikill hiti í skipinu. Alls staðar er of heitt, í vélarrúminu er heitast, svo í eldhúsinu og borðsalnum, þá mannaíbúðum, vinnsludekkinu, svo í lestinni og svalast er í beitufrystinum +3°Celsíus.

Takk fyrir í bili.

Lognið  

Grundarfirði 14.08.2003

Núna er sumarfríið mitt búið og mun ég fara á sjóinn á miðnætti í kvöld.  Báturinn sem ég er búinn að vera á s.l. 2 ár, "Grundfirðingur SH-24" var mikið breitt í sumar og var sett í skipið nýjustu Mustad græjur, beitingarvél og línuuppstokkari auk þess línuspil frá Vaka-DNG.  Svo er bara að vona að allt virki eins og það á að gera.

Til baka á forsíðu