Árið 1975 nánar tiltekið í janúar það ár kom til Grundarfjarðar togarinn Runólfur SH 135 og var hann í eigu Guðmundar Runólfssonar hf alla tíð. Skipið, sem smíðað var í Stálvík hf. í Garðabæ árið 1974, er 312 brúttólestir að stærð, 47,10 metrar að lengd, 9,0 metrar að breidd og 6,5 metra djúpt. Skipið er smíðað úr stáli og er með 1288 kw. Wichmann aðalvél. Þann 10. Maí 1998 kl. 20:30 lagði hann af stað úr höfn suður til Reykjavíkur í slipp, þar sem hann var afhentur nýjum eigendum, sem héldu með skipið til Múrmansk. Portúgalskt fyrirtæki keypti skipið í sameiningu með Rússum og Norðmönnum og greiddu þeir 10.7 milljónir Norskar fyrir það. Ber skipið í dag nafnið Bellamorsk. Bellamorsk fékk fyrst um sinn veiðileyfi á rússnesku og norsku hafsvæði, en þegar Norðmennirnir fréttu af því að Bellamorsk væri f.v. Runólfur og hafi veitt í Smugunni var norska leyfið afturkallað. Saga Runólfs SH 135 frá því hann kom til Grundarfjarðar hefur alla tíð verið góð, henda má hér fram nokkrum staðreyndum. Runólfur fór í 800 veiðiferðir, aflaði þann tíma 73.500 tonn, aflaverðmæti upp úr sjó er ca 5. milljarðar og útflutningsverðmæti 8 milljarðar. Upp reiknaður hásetahlutur gæti því verið um 80 milljónir á 24 árum, sem gera c.a 3.3 milljónir á ári.