Vélskipið Nýr SH-0 frá Breiðafirði

Þetta glæsilega skip, ásamt kerru, keyptum við Bjössi af yfirvélstjóranum á Ársæl SH-88 frá Stykkishólmi. Skipið keyptum við gegnum "braskað og brallað" sölumanninn Alfreð Viktor Þórólfsson.  Gengið var frá kaupsamningi við netaborðið um borð í Grundfirðingi SH-24 snemma dags.  Síðan var haft samband við björgunarsveitina Garðar á Húsavík og samið um kaup á tveimur 70 hestafla, Evinrude utanborðsmótorum.  Annar mótorinn var í 100% lagi en hinn var úrbræddur og því eingöngu varahlutir.  Að kvöldi til nokkrum dögum síðar var gerð ferð inn í Stykkishólm til að sækja fleytuna og jafnframt bera hana augum fyrsta sinn.  Þegar við komum inn í Stykkishólm var Alfreð búinn að græja bátinn aftan í Græna Kúldarann (Toyota Hi-Lux) sem hann átti og ókum við Bjössi bátnum á kerrunni góðu til Grundarfjarðar án nokkra vandræða og var glæsifleytunni komið fyrir í innkeyrslunni hjá Bjössa að Sæbóli 37.
Við vorum svo æstir í að komast á sjó að fljótlega eftir að mótornum hafði verið komið fyrir aftan á bátnum var honum ýtt á flot og Gunni Jó fenginn til að tengja rafmagnið að og frá mótornum ásamt að setja upp rafmagnstöflu inn í brú með stjórnun fyrir, ræsingu, ádrepara, trimmi upp & niður og öryggjum fyrir önnur tæki.
Tjakkur fyrir stýri var keyptur hjá Baldri Halldórssyni, gegnum fyrr nefndan Alfreð braskara. Lagnir voru keyptar frá Vélasölunni og stýrisdæla fyrst fengin hjá Sigga Pé.  Sú dæla var ónýt og virkaði ekki svo við sníktum út dælu frá Byrgir Strandamanni.  Sú dæla virkaði að mestu leyti nema hún var ansk.... stíf þegar beygja átti í bak.  Fyrst um sinn var notuð krafttöng á stýrisdæluna þar sem rattið sem Alfreð reddaði okkur passaði ekki á dæluna.
Síðar fór  í Vélasöluna og keypti ódýrasta stýrið sem hann fann og er það alveg ágætt.


Þetta er Nýr 2.  En hann verður keyptur árið 2010.