Áhugamálin mín!

Efst á baugi er báturinn minn og Bjössa.  En við keyptum okkur 6 metra langan skemmtibát í mars úr Stykkishólmi og fengum svo 2stk 70hö. Evinrude utanborðsmótora frá slysavarnarfélaginu á Húsavík.  Annar mótorinn er í 100% standi en hinn er bilaður.  Við erum búnir að setja annan mótorinn á bátinn og láta græja inn í brúnna start rofa, stopp rofa og rofa fyrir upp og niður færslu mótorsins.  Svo er kominn rafmagnstafla inni og í hana er búið að tengja lensidælu.  Til stendur að tengja útvarp/geislaspilara, siglingaljós, rúðuþurrku, talstöð og ljósið í áttavitanum inn á töfluna. Aftast í bátnum er rafgeymir, lensubrunnur, hand og rafmagns lensur og stýristjakkur.  Í dag erum við búnir að tengja glussaslöngu úr stýrinu inni og í tjakkinn afturá, en það gekk ekki áfallalaust.  Stýrið átti að vera tilbúið fyrir sjómannadagshelgina en vegna ýmislegra vandræða gekk það ekki eftir og urðum við að stýra bátnum með því að handsnúa mótornum aftan á bátnum.  Svo á að vera hægt að setja á ferð áfram og afturábak með þar til gerðu handfangi inni en við fengum ekki rétt endastykki á nýja barkann okkar og urðum því að vera með handfangið á dekkinu.  Við reddum því vonandi fljótlega en við fáum víst báðir gott sumarfrí.

 



Svo áhugamál nr.2 í dag er nýja fartölvan mín, gamla góða tölvan, handtölvan og uppfærsla á heimasíðunni minni.  Ég hef verið frá upphafi frekar latur við að uppfæra síðuna mína, aðalega vegna tímaskorts í landi.  Núna þegar ég hef keypt mér fartölvu get ég nýtt mér dauða tíma á sjónum og skrifað eitthverja pistla á síðuna mína og uppfært síðuna þegar í land er komið.

 



Svo er það bíllinn minn, en hann kom fyrir stuttu síðan úr alsherjar skveringu og er nánast eins og nýr í dag.

Golfið hef ég ekki stundað mikið í sumar en það breytist í sumarfríinu mínu.

Leirdúfuskotfimi erum við farnir að stunda um borð í Grundfirðingi á stímum, þegar engin önnur verkefni liggja fyrir.

Svo er auðvitað að fara setja hér inn myndir af bátnum mínum og fleirrum hlutum.



lognid@lognid.is