02.01.2003

Í dag fórum við á sjóinn að leggja netin.  Núna erum við uppfullir af væntingum um góða veiði á nýju ár.  Það er auðvitað farið að styttast í aðalveiðitímann á netunum.  En fréttir af aflabrögðum síðar.


27.09.2002

Núna erum við farnir á sjó aftur eftir sumarfrí.  Reyndar fórum við frá Stykkishólmi 20.09.2002 kl. 22:00.  Ekki eru miklar fréttir af aflabrögðum hjá okkur svo við skulum bara sleppa þeirri umræðu.  En annar er það að frétta að búið er að breyta vinnuaðstöðu okkar um borð mikið t.d. er kominn kofi afturá skipið sem geymir netaniðurleggjarann og getum við því sett öll netin afturí núna í stað þess að setja 4-5 trossur á garðinn.


Vinnan mín og tengdir hlutir

Hér ætla ég að skrifa um vinnuna mína og skemmtilega hluti tengda henni.  T.d. eiga mjög fljótlega að koma myndir frá menningarferð starfsmannfélagsins á Grundfirðingi til höfuðborgar norðurlands "Akureyrar", grillveislu sem haldin var heima hjá Bjössa laugardaginn á sjómannadagshelginni og sjómannadagsveislu í samkomuhúsi Grundarfjarðar á sjómannadegi.

Mynd af Bjössa og mér  úr ferð starfsmannafélags Grundfirðings til Akureyrar vorið 2002.  Myndina tók María Louise Johansson


Jæja, núna er ég búinn að græja eitthverjar myndir frá ferð starfsmannafélagsins á Grundfirðingi til Akureyrar.
Ef þú villt skoða þær þá smelltu á myndina af Bjössa & Logninu hér fyrir ofan, eða hér!!!!


Hér er mynd af mér að taka bauju á Grundfirðingi SH-24, inni á Grundarfirði.  Þið sjáið m.a. steypustöðina og grjótgarðinn á hafnargarðinum.  Við vorum með net í Grundarfirði s.l. haust og vorum að fá soltið af ýsu í þau.  Við borðuðum morgunmat við bryggju og svo var c.a. 10 mínútna stím í 1.baujuna.

þessa mynd tók vinur minn, Guðjón Elísson (http://www.gauiella.is), úr bátnum sínum, Pétri Konn SH-36


Grundarfjörður, 11.07.2002

Núna erum við búnir að ganga frá skipinu, taka veiðafæri og annað lauslegt í land.  Þannig að hér á þessari síðu verður ekki mikið að ské, nema myndirnar sem ég ætla setja hérna.  Jónas tók eitthvað af myndum í næst síðustu veiðiferðinni og þarf ég að fara í heimsókn til hans og fá afrit.


Grundarfjörður, 10.07.2002

Jæja, þá er ég loksins kominn heim úr síðasta róðri sumarsins.  Varðandi síðustu lögn sumarsins í gær, borgar sig ekki að hafa nein orð um hana.  Skipstjórinn minn kíkir nefnilega reglulega á síðuna mína.  Þá er ekkert eftir nema taka veiðafæri og annað lauslegt úr Grundfirðingi til að sumarfríið verði að veruleika.  Ég er nú samt ofboðslega glaður að vera kominn heim. Núna er á dagskránni að nota eitthvað af frítímanum til að setja inn myndirnar sem ég er búinn að vera lofa ykkur, þ.e. frá vinnunni og starfsmannafélaginu. Jæja, þetta er nóg í dag.  Kíkið við fljótlega aftur.

Takk fyrir heimsóknina

LOGNIÐ


Herðatré, Vestfjarðarmiðum, 09.07.2002

Núna er ég staddur í borðsalnum á Grundfirðingi SH-24 að rita pistil dagsins.  Háseta greyin eru úti að leggja netin en ég kokksi er bara fikta í tölvunni minni.  Þetta mun vera síðasta veiðiferð sumarsins hjá okkur og er tilhlökkunin orðin óskaplega mikil að komast í frí.  Við fengum ekki nema 5.5 tonn í dag í nesdýpinu, því við komum ekki trossunum okkar á besta blettinn fyrir trollurum. Helvítis trollarar!!!  En svona er nú bara lífsbaráttan.  Svo er bara eftir að draga einu sinni, sigla heim, landa og svo vinna 1-2 daga við að taka veiðafærin og annað lauslegt í land.

Jónas lagði öll netin núna á eitthvera drullubletti en á þeim var mikið líf.  Á morgun vitum við hvort það var rétt eða röng ákvörðun.


 

Í dag, 24.06.2002 ,þegar þetta er skrifað erum við að stunda netaveiðar í Nesdýpi.  Þetta er mikið togsvæði og vorum við í síðustu veiðiferð hér að berjast við frekju og yfirgang sumra trollara skipstjóra.  Allir tóku þeir nú samt tillit til okkar og voru ekkert að eyðileggja trossurnar fyrir okkur.  Skipstjórinn á "Heimaey" var reyndar mjög svo ósáttur við veru okkar á bleyðunni og fór að saka okkur um að henda öllum fiski undir 4kg í sjóinn.  Hann var nú reyndar að mínu áliti að viðurkenna að hann viti lítið eða ekkert um netaveiðar, en menn eiga helst ekki að tjá sig um hluti sem þeyr hafa ekki vit á.  Ef við vildum ekki fisk undir 4kg þá værum við ekki að veiða með 7" og 7.5" möskvastærðir í dag og er það minni möskvar enn gengur og gerist í netabátaflotanum.  Kvótalausu og kvótalitlu róa allir nánast engöngu með 9" net því þeir vilja bara stórann fisk.  Við viljum bara fá sem mest af fiski og hirðum allt. Allur þorskur yfir 3kg fer til vinnslu hjá Soffaníasi Cecilssyni í Grundarfirði en minni þorskur og aðrar tegundir eru seldar hæst bjóðanda hjá Fiskmarkaði Íslands í Grundarfirði.

Við höfum reyndar verið svo duglegir að hirða allan afla að í febrúar s.l. fengum við bréf frá fiskistofu þar sem þeyr voru að biðja okkur að henda grásleppunni í sjóinn.  Þeyr vilja meina að grásleppan lifi af að vera sleppt í hafið aftur eftir 1 nótt í netum. Svona er nú heimurinn skrítinn.

lognid@lognid.is