 |
Um tölvurnar mínar |  |
Þessi heimasíða var gerð á tölvuna mína af Acorn RiscPC gerð.
Svo á ég aðrar tölvur eins og t.d. sú sem ég er alltaf með í vasanum af Psion Revo Plus
gerð
og svo PC-turn
Allar tölvurnar mínar eru tengar við
eithernet-Hub sem tengist síðan inn á internetið gegnum VDSL-tengingu
sem gefur 10Mbita hraða til/frá notenda. VDSL er því töluvert
hraðvirkari en t.d. ADSL-tengingar sem fást í dag.
Acorn RiscPC tölvan er svona útlits.........
Persónulegar upplýsingar um bestu tölvu í heimi:
Þessi merkilega tölva er enginn Windows-drusla sem þarf að endurræsa
mörgum sinnum á dag. Ég er búinn að eiga þessa tölvu lengur enn
elstu menn muna og er hægt að telja á fingrum handa minna hversu oft hún
hefur frosið síðan ég fékk hana. Og ef ske kynni að ég endurræsi
tölvuna þá tekur það ekki nema örfáar sekúndur, því sjálft
stýrikerfið er á ROM kubbum sem ekki er hægt að síkja af vírusum.
Það eru skráastýring, skjástýring, hljóðstýring, glugga umhverfið,
diskastýring, lyklaborð o.m.fl. SCSI-stýring er á aukakorti.
Svo var ég
að prófa nýlega að taka öryggisafrit af afritunarlæsivörðum hljómdiski
sem er gefinn út á Íslandi. Ekki þurfti ég að vera með neytt vesen
við að brjóta vörnina, t.d. með að líma eða tússa yfir þann hluta
disksins sem vörnin er á, heldur setti hann bara beint úr pakkanum í
skrifarann minn og opnaði skrifara forritið mitt og afritaði diskinn.
Því má svo bæta við að ég var ekki að setja afritunarlæsivörn á
öryggisafritið mitt því ég vill geta spilað það í tölvunni minni jafnt
sem bílnum.
Tölvan mín er ekkert smámunar söm t.d. get ég sett á
gömlu 3.5" disketturnar 1.44MB eða 1.6MB og skiptir þá engu máli hvort
þær eru HD eða eldri gerðin sem aðeins var ætluð fyrir 720Kb.
Þegar svo ég hef farið með diskettur (með einu gati) forsniðnar 1.44MB
úr tölvunni minni í PC tölvur þá hef ég þurft að fá borvél til að
bora gat í disketturnar til að PC-tölvan geti lesið hana.
Vissulega er
RiscPC ekki gallalaus, en hún er það skemmtileg tölva að þegar ég kem
heim af sjónum þá hendi ég ThinkPad tölvunni út í horn og nota RiscPC tölvuna
til að vafra á netinu, skanna myndir, myndvinnsluna,
ritvinnsluna, o.m.fl.
Ef þessi tölva keyrði MS Windows, þá væri ég orðinn
gráhærður eða sköllóttur, auk þess sem hún hefði farið á hauganna
fyrir meira enn ári síðan. Þökk sé góðu stýrikerfi og góðum
vélbúnaði þá hefur þessi tölva staðist tímans tönn og í dag er hún
seld í Bretlandi á 1000 pund, með þó nokkuð minna af græjum heldur enn
tölvan mín.
Tæknilegar upplýsingar um tölvuna mína :
-
Minni
- 98 Mb DRAM (32Mb + 64Mb +2Mb) (notar þann hluta af VRAM sem ekki er notað í skjáupplausnina, til viðbótar við vinnsluminnið þ.e. alt að 98MB)
- 2Mb Video Ram
-
Auka kort
-
Castle Tecnology 10/100Mbit Eithernet kort
-
Alsystem SCSI-3 Ultra High speed kort
-
Atomwide High Speed Dual Serial Card (2x480kbitar/sek)
-
ACE MK-1 MIDI kort
- Gagnageymslur
-
1.6Mb Disklingadrif
-
FUJITSU 4.3GB IDE harður diskur
-
SEAGATE 1.2GB IDE harður diskur
-
IOMEGA SCSI-2 ZIP100 diskettudrif (100MB ZIP diskettur)
-
TOSHIBA CD-ROM XM-6201TA 32-hraða SCSI-2 geisladrif
-
MATSHITA CD-R CW-7502 8xLestur 4xSkrift SCSI-2 geislaskrifari
-
Örgjörvar
- 287MHz Digital StrongARM örgjörvi (235.34 MIPS).
- AMD 586DX 133MHz örgjörvi, sem deilir gagnabrautum, minni, skjá, hörðumdisk, CD-ROM, ZIP drifi, MIDI korti, og öðrum aukabúnaði tölvunar, með StrongARM örgjörvanum. Þessum örgjörva er stjórnað með Aleph 1's "PCPro" forriti sem getur aukið gagnahraða 586 kortsins um allt að 54%
-
Hljóðkort
- Innbyggt í móðurborðið er 16-bita steríó hljóðkort, sem gefur hljómgæði upp í 66.000Hz sem er meira en í
geislaspilara (44.000Hz). Hægt er að spila músík diska beint gegnum móðurborðið án þess að hafa sérstakt forrit til þess.
-
Önnur tæki
- PHILIPS 107B 17" skjár, 107Hz.
- Planet ISDN utanáliggjandi mótald.
- MultiTech ZDX 28.800 Bps utanáliggjandi Fax/mótald.
- Epson Stylus Photo 1270 bleksprautuprentari 1440x1440 pát. prentar á A3
- Epson Stylus 740 bleksprautuprentari 1440x1440 pát.
- Umax Astra 610S A4 SCSI skanni.
- EVOLUSIONMK-149 MIDI hljómborð.
- Hewlett Packard DeskJet 520 bleksprautuprentari 300 pát.
- Psion Revo transfer dock.
 |  |
Svona er Psion Revo Plus tölvan útlits
|
Um Psion Revo Plus:
- Minni
- 16Mb RAM (vinnsluminni).
- 8Mb ROM (lesminni).
- Gagnageymslur
- 16MB RAM-disc (sýndardiskur sem gengur fyrir vararafhlöðu).
- Aðgangur að borðtölvu er nauðsynlegur til að taka regluleg afrit.
- Örgjörvi & stýrikerfi
- ARM 710T 36.864Mhz.
- EPOC Release 5, útgáfa 1.06(390).
- Annað
- LCD snertiskjár 115x38mm (upplausn 480x160x16gráskallar).
- Plastpenni til að stjórna aðgerðum á snertiskjánum.
- IrDA tengi (115200bps) fyrir þráðlaus samskipti við tæki með Irda (innrauðu ljóstengi).
- 53ja takka lyklaborð með íslenskum stöfum.
- Vinnurafhlaða 0.1V (ending 3-10 dagar).
- Vararafhlaða 1.0V (ending 2-4 vikur).
- RS232 transfer dock (til að tengjast borðtölvu).
- Forrit sem fylgja
- Agenda hjálpar þér að skipulegja daginn, minnir á verkefni, afmæli eða hvað sem er.
- Contacts geymir upplýsingar um fólk og fyrirtæki t.d. heimilisföng og símanúmer.
- Calc er reiknivél. Þú getur séð útreikningana sem þú slóst inn líkt og af
pappírsstrimli.
- Data er gagnagrunnsforrit þar sem þú getur sett upp eigin gagnagrunn.
- Email er póstforrit. Þú getur t.d. sótt tölvupóstinn þinn gegnum GSM-síma með IrDA tengi.
- Jotter er lítil minnisbók, líkt og NotePad í windows, bara miklu sniðugri.
- Opera er netvafrari. Ef þú hefur GSM m/ IrDA getur þú vafrað um internetið í ferðalaginu.
- Phone er símaskrárforrit. Þú getur t.d. uppfært númerin í GSM-símanum með þessu forriti.
- Sheet er töflureiknir líkt og Excel. Þú getur flutt gögn milli Excel og Sheet.
- Time þekkir t.d. tímamismun milli landa, símanúmer í öðrum löndum og borgum.
- Wap er wap vafrari. Með IrDA-GSM kemstu á wap-ið þótt síminn bjóði ekki upp á Wap.
- Word er ritvinnsluforrit. Þú getur flutt skrár frá/til MS Word.
- Önnur forrit sem ég nota
- PhoneMan nota ég til að skrifa & senda SMS. Einnig les ég öll SMS úr símanum yfir í forritið til geymslu.
- Sketch teikniforrit. Ég get teiknað myndir og sent sem lógó eða myndir í Nokia GSM-síma
- CodeSafe nota ég til að geyma PIN-númer og önnur aðgangsorð sem ég þarf að muna.
- Converti er forrit sem breytir málum á ýmsum hlutum. T.d. km í mph eða lítrum í gallon.
- ZIP Manager er pökkunarforrit. Pakkar skrám saman til að spara diskpláss.
- nFTP er skráarflutningsforrit fyrir internetið.
- Scribble2000 gerir mér kleift að skrifa stafi á skjáinn með pennanum í stað þess að nota lyklaborðið.
- QuickNote. Þú skrifar á skjáinn með pennanum eins og þú værir að rissa á blað.
- Svo er hægt að fá fullt af öðrum forritum t.d. borgarkort, bókhaldsforrit, teikniforrit o.m.fl.
- Slatti er til af leikjum t.d. Skák, kaplar, póker, sokoban, adder, cascade o.m.fl.
PC-turn
Ég fjárfesti nýlega í nýrri fartölvu, til að hafa úti á sjó.
Hún inniheldur eftirtalinn búnað.
- Minni
- 512MB vinnsluminni 333Mhz DDR
- 128MB GeForce4 DDR skjákort
- Gagnageymslur
- 80GB IBM harðurdiskur
- Samsung sambygður CD/RWgeislaskrifari og DVD geisladrif
- Örgjörfar og stýrikerfi
- AMD 2500XP Barton 2Ghz
- Windows XP Professional
- Annað
- 21" Compaq V1000 229.5 riða skjár með USB-HUB í fæti
- 5.1 Dolby Digital hljóðkort
- Innbyggt 10/100MB netkort
- 6x USB
- Sony Ericsson docking station fyrir P800
síma