22.04.2003
Ég var að koma heim frá Dublin og ættla að setja inn myndir frá þeyrri ferð hér fljótlega. Þær fara líklegast undir starfsmannafélag Grundfirðings.
03.01.2003
Þið sem kíkið hér við reglulega og sjáið ekki nýtt efni á hverjum degi eigið örugglega í eitthverum vandræðum með nettengingar ykkar. Ég uppfæri nefnilega síðuna mína a.m.k. tvisvar á dag en þar sem svo margir eru með lélegar tengingar þá getur það tekið ykkur sem eruð verstu tilfellin allt að 3 mánuðum að fá nýja uppfærslu á skjáinn og þá auðvitað er uppfærslan orðin mjög gömul.
með kveðju
Lognið
VELKOMINN TIL LOGNSINS sem býr í Grundarfirði
Sælt
og
blessað gott fólk. Ég vill byrja á að þakka ykkur fyrir
að heimsækja síðuna mína.
Hér skrifa ég pistla um vinnuna, áhugamálin, vini og vandamenn eða
eitthvað annað misjafnlega gáfulegt, auk þess
sem ég reyni að setja inn eitthvað af myndum tengdum þessu öllu saman.
Ef
þú kíkir við og við á síðuna og finnst hún ekki uppfærð nógu oft
þá er bara senda mér póst með athugasemdum varðandi það. Það er
bara einn maður sem reglulega skammar mig fyrir seinagang við uppfærslu
síðunar minnar, hann heitir Jónas Sigmarsson og er hann skipstjórinn minn og
störfum við saman á Grundfirðingi SH-24. Það er nú orðið helv...
hart þegar hann er farin að skamma mann utan vinnunnar líka. Nei, smá djók,
en annars er mjög gott að fólk láti mig vita af heimsóknum og ýti á eftir
uppfærslum. Þess vegna ætla ég að fara reyna koma
gestabókinni minni aftur í gang.
Svo vill ég gjarnan biðja fólk um að hjálpa mér smá með útvegun á efni á síðuna, t.d. með því að senda mér myndir af mér, ykkur, partíum, vinnustöðum, eða eitthverju sem tengist mér og mínum vinum. Jónas hefur verið afskaplega hjálplegur við að láta mig hafa myndir úr menningar ferð áhafnarinnar til Akureyrar í vor, auk nokkurra mynda teknar af vinnunni um borð í Grundfirðing. Ef þið hafið ekki myndir á tölvutæku formi þá er bara að kíkja í kaffi með myndir og ég skanna þær og set á síðuna ef eitthvert vit er í þeim.
Svo þætti mér ákaflega vænt um að fá að vita af biluðum tengingum á síðunni og ef eitthverjar tengingar opnast í vitlausum gluggum.
takk fyrir
Lognið (14.08.2002)
myndin að ofan er af Bjössa & Logninu á Akureyri vorið 2002 (ljósm. Louise Johansson)
Hér er ég á toppnum á Kirkjufelli með Grundarfjarðarbæ í baksýn.
Hér er mynd af bílnum mínum fyrir utan Grundarfjarðarbæ og á bílnum situr vinkona mín sem heimsótti mig "Á góðri stundu í Grundarfirði" sumarið 2000.