Velkominn!
Þetta er heimasíðan mín
og ég er LOGNIÐ UNDAN STORMINUM og hér til hægri á síðunni sjáið þið mynd af mér þegar ég var krakki. Þið sem þekkið mig sjáið auðvitað að ég komst snemma í snertingu við símann og vitið að ég hef varla sleppt honum síðan.
Ég hef verið kallaður "Lognið" af vinum mínum og félögum síðan 1994 og er ég skráður í símaskránni undir þessu nafni, auk þess sem bíllinn minn ber einkanúmerið "Lognið". Ég var reyndar oft kallaður "blíða-logn" þegar ég var krakki, Óli bróðir var kallaður "Óli kaldi" og pabbi er/var/verður kallaður "Óli stormur" eða bara "Stormurinn"
Svo kom að því að hugvitsmaðurinn "Ingi Hans Jónsson" var starfsmaður "Félags atvinnulífsins í Grundarfirði" s.l. sumar og sá hann um skipulagningu á hátíðinni á "Á góðri stundu í Grundarfirði" og datt honum í hug að nota viðurnefnið mitt til auglýsingar á hátíðinni. Sjá meira hér
Ég hef verið frekar latur við að uppfæra síðuna mína reglulega og veit ég ekki hvort það á nokkuð eftir að breytast. Ég er nýbúinn að endurskipuleggja allt heima hjá mér og er heimasíðan næsta verkefni en fyrirsjáanlegt er að ég ætti að geta verið meira heima og synt heimasíðunni betur en
síðasta vetur.
Ég hætti á ísfisktogaranum Hring SH-535 www.Grhf.isí verkfallinu í s.l. vor og réði mig svo á Grundfirðing SH-24 www.soffi.comá þorsknetaveiðar ásamt Bjössa vini mínum. Síðan í s.l. haust hætti einnig nafni minn á Hringnum og kom á
netin á Grunda.
Af eitthverum orsökum hefur s.l. tvö ár verið mikil endurnýjun í áhöfninni á mínu gamla skipi, en skoðið pistil um sjómennskuferil minn hér
Hér er ég á toppnum á Kirkjufelli með Grundarfjarðarbæ í baksýn.
Hér er mynd af bílnum mínum fyrir utan Grundarfjarðarbæ og á bílnum situr vinkona mín sem heimsótti mig "Á góðri stundu í Grundarfirði" sumarið 2000.