LOGNIÐ SEM BJÓ Í GRUNDARFIRÐI
Vantar þig sendibíl??? Smelltu á símanúmerið hérna að neðan
21.05.2008
Elín María stækkar og stækkar og er sífellt að upgötva nýja hluti er hún greinilega farinn að sjá ágætlega. Hún er farinn að geta gripið utan um hluti eins og hárið á mömmu sinni, hálsfesti og í hálsmálið á fötunum okkar þegar við höldum á henni. Hún er farinn að geta staðið í lappirnar með hjálp í nokrar sekúndur. Henni líkar líka vel við sjálfvirku róluna sína og sofnar þar stundum.
Elín María var síðast viktuð föstudaginn 16.maí og var hún þá orðin 4.680 grömm. Þann 29.maí fer hún í fyrstu heimsóknina á heilsugæslustöðina og verður meðal annars viktuð og lengdarmæld. Svo núna vill ég að þið giskið á hvað hún verður búinn að lengjast mikið og hvað hún verður þung/létt?
Litla sæta stúlkan í baði
Tatiana og Elín María í Kópavoginum
Tatiana & Elín María úti í góðaveðrinu í Kópavogi
Elín María & Ég (Lognið) að hvíla okkur í sófanum heima
11.05.2008
Vill byrja á að óska mömmu minni og öllum öðrum mömmum til hamingju með mæðradaginn!
Hef ekki verið duglegur að uppfæra en hérna kemur þó eitthvað.
Þegar Elín María fæddist var hún 3.520 grömm, en 6 daga var hún 3.580grömm, 17 daga var hún 4.150 grömm og loks 24 daga var hún orðin 4.420 grömm. Sem sagt þá er stúlkan mín litla búinn að þyngjast um 900 grömm frá fæðingarþyngd sem er bara hið besta mál. Hélt reyndar um daginn að ég gæti nú auðveldlega bara haldið á Elínu Maríu í fanginu og viktað okkur saman á hverjum degi til að sjá hvað hún er dugleg að stækka, vegna þess að ég er alltaf 99.990 grömm. Vegna þess hélt ég um tíma að stúlkan hefði þyngst töluvert meira, en við nánari eftirgrennslan var um tæknileg mistök að ræða.
Fjölskyldan úti að labba
Tatiana & Elín María að labba skammt frá heimilinu okkar sem er í baksýn.
Elín María horfir yfir öxlina á ömmu sinni.
3.05.2008
BROS DAGSINS!!!!
Fyrsta brosið sem náðist á mynd!!!!
Angelica (frænka og nágranni) & Elín María
21.04.2008
Til hamingju með afmælið Bryndís Rósantsdóttir!
En þá að aðal stúlkunni.
Fórum í morgun í fimm daga skoðun og kom í ljós að Elín María er orðin 60gr. þyngri en þegar hún fæddist. Hún stóðst heyrnarmælinguna og læknirinn sagði að hún væri hraust og liti mjög vel út að öllu leyti. Það var jafnframt gaman að í fimm daga skoðun voru fjórar aðrar nýbakaðar mæður sem voru með Tatiönu í meðgöngujóga. Þær áttur reyndar allar fjórar börnin sín þann 14.apríl en okkar prinsessa er 15.apríl. Held reyndar að ég hafi verið búinn að sjá alla foreldrana sem voru þarna á fæðingardeildinni áður.
Í gær fengum við svo nokkra gesti sem lögðu á sig ýmist langt eða stutt ferðalag til að koma. Fyrst komu að heimsækja Elínu Maríu, Bent bróðir og Systa mágkona en þau komu alla leið frá Grundarfirði. Þau gáfu Elínu Maríu svakalega flottan kjól sem Systa heklaði en hann mun sennilega ekki passa fyrr en seinnipart sumars eða í haust. Svo fengum við eitthvað meira með þessu.
Svo komu mamma (Guðný) og Friðjón að skoða prinsessunna. Mamma var nú reyndar búinn að koma og skoða áður, en leyfist ekki ömmunum að koma nánast þegar þær vilja? Svo á morgun þá eigum við von á pabba (Óli Stormur) í heimsókn og ætlar hann að fá að gista hjá okkur eina nótt.
Jæja, þá eru það myndir dagsins!!!! En gleymið ekki að svara spurningunni frá 19.apríl.
Bent & systa komu í heimsókn. Það sést aðeins í Bent á bakvið Tatiönu.
Elín María sofandi hjá mömmu sinni, svo er amma hennar í miðjunni og Systa til hægri.
Tatiana, Elín María og Guðný amma (bunica)
Litla sæta Elín María & sæta Tatiana móðir hennar
19.04.2008
Allt er orðið öðruvísi!!!
Það er ekki víst að maður sé búinn að fatta þetta almennilega, en það er mjög margt sem að verður öðruvísi við að verða pabbi. Skrapp til Óla og Angelicu í gærkvöldi en þau voru með smá partý. Konan komst auðvitað ekki þótt þetta væri í næsta húsi og ég stoppaði bara stutt. Það verður sem sagt ekkert auðvelt að komast á mannamót á kvöldin þar sem allt mun snúast um prinsessuna. En í gærkvöldi, í veislunni/partýinu þá vorum við nokkrir að spjalla um bíómyndir og svo bíóferðir og varð einum að orði að hann færi núna ekki nema c.a. tvisvar á ári í bíó og þá alltaf á barnamyndir, aldrei á stórmyndir sem honum langar að sjá sjálfum og þá sagði annar faðir, "ég get ekki svarað nema bræða úr heilanum" en hann mundi ekkert eftir síðustu bíóferð en sagði að hún hefði örugglega verið áður en hann varð faðir fyrir rúmum 2 árum.
Svo á maður auðvitað eftir að sjá fullt af öðrum hlutum sem eru öðruvísi.
En það er reyndar búið að vera svaka gaman og ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. En mér skylst að konan þurfi að hvíla sig sérstaklega vel þessa daganna því líðan hennar hafi mikil áhrif á barnið. Þess vegna höfum við reynt að hafa það bara rólegt og höfum beðið marga sem hafa viljað koma og sjá dúlluna að bíða. Reyndar komu Óli, Jolanta, Viktoría Ása & Frank í heimsókn á fimmtudagskvöldið. Gat ekki séð betur en að Viktoría Ása hafi verið soldið hrifinn af littlu frænku sinni.
En nóg í bili. Bara nokkrar myndir og svo smá getraun fyrir ykkur undir myndum dagsins!!!!!!!!
ENDILEGA SVARA!!!!!
Fyrsta myndin af fjölskyldunni!!! f.v. Tatiana, Elín María & Bjarki (Lognið)
Elín María og ég (proud father)
Lítið barn, lítið vandamál!
Tatiana (the queen) & Elín María (the princess)
Spurning dagsins er:
Elín María er prinsessan.
Mamman (Tatiana) er drottningin.
Hvaða hlutverk hef ég þá???
17.04.2008
Komum heim með Elínu Maríu í gær. Þær voru nú ósköp þreyttar mæðgurnar enda bara ósköp eðlilegt miðað við allt sem á undan er gengið. Maður er bara alveg í skýjunum............ veit ekki hvernig á að orða það en ef ég ætti bara eitt orð væri það líklegast ótrúlegt! Tatiana spjallaði við systur sína og móður í gegnum Skype, með webcameru svo þau gætu nú séð litla krílið. Veit að tengdamamma var ofboðslega ánægð að fá að sjá stelpuna, þó ekki væri nema í gegnum vefmyndavél.
Fengum svo Óla og Angelicu í heimsókn í gærkvöldi í smá tíma, en upp á fæðingardeild fengum við í heimsókn Angelicu, mömmu mína og svo Sirrý frænku (systir hennar mömmu). Svo vorum við rétt í þessu að fá heimsent svakalega flottan blómvönd og kort frá Útgerðagerðinni og áhöfninni á Bíldsey SH-65 og vill ég þakka þeim fyrir það. Auk þess viljum við þakka ykkur öllum sem hafið verið að senda okkur kveðjur í sms, e-mail, gegnum síma eða á annan hátt alveg innilega TAKK!!!
15.04.2008
Stóri dagurinn!!!
Ég er orðinn pabbi!!!
Við eignuðumst í morgun kl. 06:08 yndislega stúlku og var hún við fæðingu 50cm löng og 3.520 grömm eða 14 merkur. Við höfum ákveðið að nefna prinsessuna okkar Elín María eftir ömmu hennar og langömmum. Tengdamamma mín í Moldavíu heitir María og móðir hans pabba míns hét María. Móðir hennar mömmu minnar hét Elínborg Ása og er Elín stytting á hennar nafni svo ættingjar Tatiönu eigi betra með að bera það fram.
Elín María og Tatiana (ástirnar mínar!!!)
Ég og Elín María (eða kannski Logn & Blíða og sólin skín inn um gluggann)
Elín María komin heim!!!