Hér eru myndir úr menningarferð áhafnarinar á Grundfirðingi SH-24, til Akureyrar 10.05.2002-12.05.2002

Þetta var mjög svo skemmtileg ferð.  Við gistum á gistiheimili í göngugötunni í tvær nætur.  Á föstudeginum fórum við að borða á Greifanum og var mjög gott að borða þar.  Kokkurinn og stýrimaðurinn voru með óvænta uppákomu.
Eftir matinn fórum við á gistiheimilið þar sem Alli spilaði á gítar og var sungið til miðnættis.

Á laugardeginum, uppúr hádegi kom rúta að sækja okkur.  Enginn vissi hvert átti að fara.  Byrjað var að skipta okkur í tvö lið og þau skírð "Þorskarnir" og "Karfarnir".  Hvort ætli hafi verið betra að vera, þorskur eða karfi???   Karfinn hefur nú oft verið kallaður skítfiskur.  Þegar ég var á togaranum þá var karfanum traðkað ofan í móttökuna, traðkað úr móttökunni og loksins þegar hann kom niður í lestina, traðkað ofaní körin.  Þorskunum var hinsvegar klappað og raðað í körin.  Svo ég tel það hafa verið betra vera þorskur.

Þetta er Alli yfirvélstjóri byrjaður að *1bauka fyrir matinn á föstudeginum.

Þetta er skipstjórafrúin, búið er að mála hana vegna óvissuferðar sem við fórum í á Laugardeginum.


f.v. Sigga, Róbert, Jessica, Ásta, Alli yfirvélstjóri og Bjössi vélavörður, Jónas skipstjóri er ekki með á myndinni.

Þetta er í ratleiknum, Karfa liðið
Hitt liðið voru Þorskarnir og hvort haldið þið að sé betra að vera Þorskur eða Karfi?


f.v. Ásta (Gunna date), Alli vélstjóri, Róbert háseti, Bjössi vélav., Jessica, Sigga

Þarna voru karfarnir orðnir villtir í Kjarnaskógi.


f.v. Ásta, Brynja, Louise, Bjössi, Gunni, Jessica, Sigga, Lognið, Gyða, Bjarki bóndi

Þarna er megnið af liðunum komnir úr skóginum og urðu auðvitað Þorskarnir á undan, auk þess sem þorskarnir kláruðu allar þrautirnar sínar og renndu sér svo niður á hótel til að sækja bjór til að taka vel á móti körfunum ef þeir skildu koma aftur úr skóginum.

Bjarki bóndi undir Liverpool fánanum í brugghúsi Vífilfells. Hann er EKKI LFC FAN

Þarna er Alli enn að, bara þetta skiptið í bjórverksmiðjunni.

Louise, alltaf svo þjóðrækin með þjóðfána sinn á enninu.  Svo er hún alltaf brosandi

Sigga máluð eins og karfi.  Hún reyndi að fá stig fyrir að líkjast karfa sem mest.

Lognið var manna áhugasamastur um víngerðina, fékk víngerðaráhugan í arf.

Þetta er Palli danski í himnaríki!!!!!  Værir þú ekki til í að eiga lagerinn??

Lognið og Alli að skála fyrir mjög svo góðri skoðunarferð um bjórverksmiðjuna, þeyr reyndu að smakka eins mikið og mögulegt var.

f.v. Gyða, Alli og Brynja, þau voru að bíða eftir að fara út að borða á Friðrik V með starfsmannafélaginu.

Hér eru allir sælir og góðir að bíða eftir matnum á Friðrik V.

Lognið og Louise á kaffi Akureyri

*1bauka er norðlenska og þýðir að drekka úr dós (oftast bjór).  Norðlendingar kalla dósir, bauka.