29.2.2004
Það var voða gaman í gær og er ekki laust við að smá þynnka sé í gangi í dag/kvöld. Og þar sem ég hef öðlast ökuréttindin aftur gat ég eitt hluta af sunnudeginum á rúntinum.
Lognið
í gervi Palla danska. Það koma svo fleiri myndir frá gærkvöldinu
inn á morgun. P.s. þið megið alveg senda mér myndir frá
grímuballinu
28.2.2004
Frí á morgun, ball í kvöld og það grímuball.
Fyrir partý hjá vini mínu Palla danska.
26.2.2004
Samkvæmt óáræðanlegum fréttum er Björn Kristján
Ásgeirsson búinn að yfirgefa landið og mun hann líklegast vera á
leiðinni til Noregs. Talið er að íslenska utanríkisráðuneytið
hafi komið Bjössa í vinnu á Norsku síldveiðiskipi til að stuðla að
aflabrest hjá Norska síldveiðiflotanum. Munu Norðmenn því ekki
getað veitt síldina og mun hún því væntanlega ganga í síldarsmuguna eða
íslenska lögsögu.
Í dag vorum við með milli 7 og 8 tonn og byrjaði
dagurinn þokkalega, eða þar til í hádeginu að kokkurinn hringdi í
ónefnda fiskifælu, sem staddur var erlendis, og fékkst lítill afli eftir
það
25.2.2004
Jæja, við hreinsuðum lyktina af Bjössa úr netunum í gær
og því þurfti ekki að koma okkur á óvart aflabrögðin í dag.
Við vorum með yfir 14 tonn í dag.
Svo var ég að fá mér auka harðan
disk í turninn minn, 160GB og keypti í leiðinni þráðlaust lyklaborð og
þráðlausa geislamús.
24.2.2004
23.2.2004
Bolla, bolla, bolla!!! Það var nú skrýtið með
ónefnda manninn, að hann borðaði ekki nema 8 bollur í dag áður en hann
fór heim til sín að borða fleiri bollur.
Svo fór ég á vigt í gær
og komst að því að ég léttist tvöfalt hraðar á netunum en ég
þyngdist á línunni.
Eldra efni hér að neðan:
Vika 9 (23.2-29.2)
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: