22.2.2004
Bjössi og Eyrún komu í heimsókn í gærkvöldi og byrjaði
Bjössi á því að snúa upp á handleggin á mér og neyða mig til að
drekka bjór. Eftir það var ekki aftur snúið og fórum við að
kanna næturlífið. Það var nú ekki mikið að gerast í miðbæ
Grundarfjarðarborgar í gærkvöldi. Það voru ákaflega fáir á
skemmtistöðunum. Það voru 6-8 manns á Krákunni en eitthvað fleiri
á Kaffi 59
Núna (18:00) erum við Frank í bolluveislu hjá Óla &
Jolu. Svo er það blessaður bolludagurinn á morgun og ónefndur
áhafnarmeðlimur,
heimtar 100 bollur fyrir sig. Helv.... græðgi í honum.
Meðfylgjandi
mynd er af Viktoríu Ásu frænku þar sem hún borðaði bollur af bestu
lyst.
21.2.2004
Bara eitt orð yfir aflabrögð dagsins, Bjössi!
En
annars er laugardagskvöldið til að lyfta sér eitthvað upp. Bjössi
er búinn að vera reyna neyða mig til að fá mér bjór í kvöld og kíkja
út á lífið. Eins og ég eigi ekki ágætt líf með tölvunum mínum
heima? Klukkan 20:50 vantar mig 2 heimsóknir til að ná 5000
heimsóknum á vefinn minn. Sá sem verður nr. 5000 endilega skildu
eftir "þitt álit"
Kl. 21:16:45 skoðaði einstaklingur með Windows ME og
Internet Explorer 5.5 vefinn minn. Hann er með innhringi aðgang hjá
Símanum internet og er IP talan hans 212.30.197.13. Þessi
einstaklingur kallar sig "
20.2.2004
Það var svo lítill aflinn í dag að það er
skelfilegt!!! Af tillitsemi við Björn
Kristján, ætla ég ekki
að segja frá því hver líklegasta skýringin er á þessum aflabresti!
Það
virðast vera orðnir 10-11 daglegir gestir á síðunni minni og c.a. 10
gestir daglega sem eru að koma í fyrsta skipti. Þannig að daglegt
meðaltal er orðið c.a. 21 heimsókn.
19.2.2004
Til hamingju með afmælið í dag Emilia!!!
Bjössi kíkti í heimsókn. Hann var ekki hamingjusamur
með að vera kallaður fiskifæla. Hann fær því morgundaginn,
laugardaginn og mánudaginn til að afsanna kenninguna um að vera eða vera
ekki fiskifæla.
18.2.2004
Æ,æ, það eru líkur á að fiskiríið í febrúar verði eyðilagt
næstu dagana, en aftur fáum við Björn Kristján fiskifælu með
okkur. Já, jafnvel þótt Bjössi sé með duglegustu og skemmtilegustu
mönnum sem ég hef verið með á sjó, þá er ekki gaman að hafa
fiskifælu með. Maður er nú að stunda sjómennskuna til að hafa eitthvað
kaup.
16.2.2004
Það var ekki mikið líf í Grundarfirði á
laugardagskvöldið, en þá fórum við á Krákuna og fengum okkur
bjór. Veðrið var líka skelfilegt svo það er ekkert skrítið að
fólk hafi haldið sig heimavið. Í dag vorum við með rúm 7-8 tonn.
í netin. og vorum komnir í land kl. 13:15 og vorum á undan Haukaberginu!
Eldra efni hér að neðan:
Vika 8 (16.2-22.2)
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: