14.2.2004

Loksins kominn helgi.  Þar sem við erum alltaf í fríi á sunnudögum þá er laugardagskvöldið kjörið til að lyfta sér aðeins upp.  Við náðum 40 tonnum í vikunni og vorum með 36 tonn í s.l. viku, þannig að fyrri hluti febrúar var nokkuð góður.  Við erum að spá í að fara á Krákuna í kvöld, ég, Daddi, Bjarni & Fjölnir.

13.2.2004

Fyrir ykkur sem eruð í vandræðum með POP-UP-glugga (auglýsingargluggar), þegar þið eruð á internetinu þá á ég ágætis forrit sem þið getið sótt hérna.  Forritið er frekar einfalt og þægilegt í notkun.  Það er hægt að leyfa auglýsingarglugga á ákveðnum vefsvæðum, auðvelt er að gera forritið óvirkt og virkt eftir þörfum.  Stundum má bara tvísmella í staðinn fyrir að afvirkja forritið.  HÉRNA FÆRÐ ÞÚ FORRITIР A.t.h. að þið verðið að setja inn raðnúmer (serialnumber) , til að virkja forritið, sem er: 378-969-8513 

12.2.2004

4,5 tonn í dag og 8,5 tonn í gær.  Annars er bara farið að styttast í helgarfrí.  Vikan er búinn að vera stutt og gaman í vinnunni.  Ég of Fjélli erum farnir að plana helgina.  Förum líklega á Krákuna, Stykkishólmur er samt möguleiki ef eitthvað er að gerast þar!!!  Það gerist samt aldrei neitt í Hólminum, ef maður mætir á laugardegi segja Hólmararnir: "stuðið var allt í gær" en ef maður mætir á föstudegi, þá segja þeir: "Fjörið verður á morgun" en ef maður mætir á föstudegi og laugardegi þá segja þeir annað hvort : "fjörið var um síðustu helgi" eða "fjörið verður næstu helgi".  Þannig að Krákan vinnur líklega!!!!!

10.2.2004

Það er ekkert að frétta!!!!   Búinn að setja upp gestabók á síðuna hennar Viktoríu Ásu.  Á reyndar eftir að breytta henni þannig að hún verði á Íslensku og pólsku en ekki ísl./ensku.
5 tonn í dag og 8 tonn í gær.  Komnir með 48 tonn í febrúar.



Eldra efni hér að neðan:

Vika 7 (9.2-15.2)

Vika 6 (2.2-8.2)

Vika 5 (26.1-1.2)

Vika 4 (19.1-25.1)

Vika 3 (12.1-18.1)

Vika 2 (5.1-11.1)

Vika 1 (29.12.03-4.1.04)

Vika 52 (22.12-28.12)

Vika 51 (15.12-21.12)

Vika 50 (8.12-14.12)

Vika 49 (1.12-7.12)

Vika 48 (24.11-30.11)

Vika 47 (17.11-23.11)

Vika 46 (10.11-16.11)

Vika 45 (3.11-9.11)

Vika 44 (28.10-02.11)

Vika 43 (20.10-26.10)

Vika 42 (13.10-19.10)

Vika 41 (6.10-12.10)

Vika 40 (29.09-5.10)

Vika 39 (22.09-28.09)

Vika 38 (15.09-21.09)

Vika 37 (8.09-14.09)

Vika 36 (1.09-7.09)

Vika 35  (25.08-31.08)

Vika 33-34 (11.08-24.08)

Júlí 2003

Gömul forsíða

Eldri forsíða


Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á:

lognid@lognid.is