8.2.2004
Lognið vaknaði bara snemma í dag. Var vaknaður fyrir
kl. 7 og hafði ekkert að gera svo ég lagði mig bara aftur.
Svo er ég
bara ekkert búinn að gera í dag nema laga teljarann fyrir ykkar álit á
síðunni minn, en ég ætla að setja gestabók á
síðuna hennar Viktoríu
Ásu og taka fartölvuna hans Óla bróðir
í gegn. Fyrst afrita gögnin af henni á geisladiska og svo setja
tölvuna upp á nýtt þannig að hún verði sprækari í vinnslu. Svo
auðvitað að setja upp eldvegg hjá honum.
7.2.2004
Það er ótrúlegt hvað ég var sannspár með aflabrögðin
í dag, helmingi minni afli en í gær, eða c.a. 5 tonn. Þetta er nú
ekki gott fyrir orðsporið hans Bjössa, að vera fiskifæla. Ég held
samt að við ættum að gefa honum eitthvern tíman einn séns í viðbót
til að reyna afsanna að hann sé fiskifæla.
6.2.2004
Í dag vorum við með fínan afla, 9-10tonn en útlitið er
ekki bjart með morgundaginn þar sem við munum hafa Björn
Kristján Ásgeirsson með okkur. Eftir að drengurinn fór í
vélskólann hafa nánast allir lausaróðrar sem hann hefur farið komist á
spjöld sögunar vegna aflabrests. Það er bara af góðmennsku að við höfum hann með til að reyna afsanna að hann sé fiskifæla.
Svo
vorum við að fá samning um nýtt fiskverð sem gildir fyrir netavertíðina
en atkvæðagreiðsla verður á morgun um fiskverðið.. Það er ekki
hægt að segja annað um samninginn en hann sé frábær og á Siggi
forstjóri þakkir skyldar fyrir þetta tilboð. Meðan flest allar
útgerðir væla og skæla um hátt gengi íslensku krónunnar, lágt
afurðarverð o.fl. þá getur Sigurður boðið okkur betra verð en á
síðustu vertíð. Ég geri ráð fyrir því að samningurinn sé
trúnaðarmál milli útgerðar og áhafnar og því verða engar tölur
birtar.
Svo er framundan frí á sunnudaginn og því spurning um hvað
maður gerir á laugardagskvöld???
5.2.2004
Við erum fræknir fiskimenn................. 7 tonn í
dag, 6t. í gær, 2,2t. í fyrra dag og 5t. á mánudag = c.a. 20tonn. Og
það er bara byrjun febrúar.
Svo var Felipe Massa, ökumaður Sauber og tilraunarökuþór Ferrari að tjóna
Sauber C23 bílinn í gær. Það brotnaði fjöðrunin á öðru
framhjólinu og hann fór útaf á 300km hraða, en hann stóð upp
óslasaður. Svo var Oliver Panis, á Toyota að klessa í dag og segja
fréttir að Panis hafi sloppið við meiðsli.
Annars er sáralítið að frétta af mér. Lífið mjög einfalt, vakna,
fara á sjóinn, koma heim af sjónum, fara á internetið og svo fara að sofa.
Er þetta eitthvað líf? Það er annars rosalega gaman að vera
byrjaður á netum aftur. Svo er frí á sunnudaginn, þannig að hægt er
að kíkja á lífið um helgina. Langar reyndar dálítið að fara á
þorrablótið en nenni ekki einn. Það er líklega ekkert að gerast á
Krákunni eða Kaffi 59 um helgina. Alla vega fæ ég aldrei fréttir úr
bæjarlífunu, þar sem ég fæ ekki vikublaðið Þeyr reglulega. Mjög,
mjög langt síðan ég fékk blaðið síðast. Svo stendur í blaðinu
að það sé borið í öll hús í Grundarfirði! Hann Hjörtur á
neðri hæðinni fær líklega blaðið svo fullyrðingin gæti staðist. Hund
fúlt!!!
Svo er dýri GSM síminn minn eitthvað að bögga mig. Líklega búinn
að missa hann of oft. Spurning hvort það sé ábyrgðartjón eða
tryggingarmál sem Sjóvá Almennilegir redda fyrir mig. Alla vega hafði
ég vit á því að tryggja GSM símann minn hjá þeim.
Svo var ég að sjá athyglisverða mynd af fyrrverandi vinnufélag mínum,
honum Birkir, á netinu, en þar sem maður þarf að vanda efnisval á vefinn
minn þá ætla ég ekki að birta hana hérna. Þið sem endilega viljið
skoða myndina geta farið inn á Humor.is og fundið hana þar undir "Beta
rokk að láta sleikja á sér .........."
Dálítið fyndin ummæli hjá hæstvirtum forsætisráðherranum okkar, Davíð
Oddssyni.

Og
svo nákvæmlega sömu ummælin í hljóðskrá > Smella
hérna til að hlusta!!!!
3.2.2004
Í dag hef ég ekkert gert fyrir utan vinnuna. Við vorum
reyndar í fyrra fallinu í landi og er ég bara búinn að vera vafra á
netinu. Ég var að skoða heimasíður nokkurra fyrirtækja og stofnanna
í Grundarfirði. Ég tók eftir því að Grunnskólinn okkar, sem ég
stundaði nám í, er afskaplega konuvæddur vinnustaður, af 23* kennurum eru
20 þeirra konur, aðeins 1kk kennari er umsjónarkennari (15ára
krakkar). Á leikskólanum eru allir starfsmenn konur og held ég að í
framhaldsskólanum sé aðeins búið að ráða einn starfsmann, skólameistara
sem er kona. Ekki það að ég hafi eitthvað á móti konum né telji
þær verri kennara, heldur
vaknaði sú spurning hjá mér hvort það sé ekki óeðlilegt að krakkar
frá 2-16ára uppfræðist í menntastofnunum okkar nánast eingöngu af
konum. Geta konurnar haldið uppi góðum aga í skólunum? Ég bara spyr er ekkert til af karlkyns kennurum lengur? Þegar ég
var að alast upp voru hlutföllin önnur og voru t.d. flestir umsjónarkennarar
mínir karlkyns. Karlmenn eru jú, með öðruvísi viðhorf til margra
hluta en konur og ætti því kennsla að koma frá báðum kynjum í jafnara
hlutfalli.. Ég vona nú bara að blessaður framhaldskólinn verði ekki
100% kvennaríki því ég held að krakkar verði að fá eitthvera þekkingu
frá karlstofninum.
*taldi
skólastjóra og kennara á vef Grunnskólans
2.2.2004
Úff, ææ, mér var að berast kvörtun yfir efni á
vefnum mínum. Þetta varðar efni sem ég setti inn 30.01.2004 og tók
ég kvörtunina til greina þar sem ég skyldi vel tilefnið. Eina sem ég
hef yfir kvörtuninni að kvarta er að hún barst mér frá þriðja aðila,
þ.e. kvartað var við 3ja aðilla útaf efni á síðunni minni en ekki send
kvörtun beint til mín. Ég bið ykkur öll sem hafið eitthverar
athugasemdir eða ábendingar varðandi efnisval, uppsetningu, myndir, tengingar
eða annað á vefnum mínum að senda mér póst á lognid@lognid.is
Ég verð að viðurkenna að athugasemdakerfið á síðunni minni er að virka flott. Þetta var auðvitað snilldar hugmynd hjá Tomma að benda mér á að setja þetta upp. Þetta hefur hleypt smá lífi í síðuna og er alltaf gaman að fá smá comment frá vinum og kunningjum. En það er reyndar eitt sem er ekki að virka, en það á að sjást hve margar athugasemdir eru komnar við hvert tilfelli, en ég fæ það bara ekki til að virka.
Eldra efni hér að neðan:
Vika 6 (2.2-8.2)
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: