1.2.2004

Þá er maður kominn heim.  Ég, Bjarni & Fjölnir fórum í menningarferð til höfuðborgarinnar.  Skutluðum Fjella til Birkis, fórum svo til Bjössa & Eyrúnar og fengum okkur bjór.  Svo kom Bjössi Kolla og skutlaði okkur upp í Mosó þar sem við fórum á ball með Pöpunum.

Þann 5.4.2058 verður mikill sorgardagur í heiminum en þá mun ég að öllum líkindum kveðja þetta líf, tæplega 84 ára gamall.  Hvenær deyrð þú?

En í dag er gleðidagur hjá Ferrari mönnum.  Sjúmmi var að klára 3ja daga prófanalotu á nýja F2004 bílnum,  hann bætti brautarmetið á einkabraut Ferrari í gær um 0.5 sek. en í dag bætti hann metið aftur og það núna í 55,999sek. hringurinn.  En það sem var mikilvægast er að bílinn kláraði 700km akstur án nokkurra bilanna.  Þannig að nýji Ferrari-bílinn er bæði traustur og hraðskreiður.

30.01.2004

Pistill dagsins var fjarlægður vegna kvörtunar.  Ég skil nú alveg þau sjónarmið fólks þar sem pistillinn var frekar grófur og bið þá afsökunar sem urðu fyrir andlegu áfalli vegna þessa.  Þetta átti auðvitað bara að vera brandari, en þar sem netið síðan er opin öllum til skoðunar ætti svona efni ekki að vera til staðar.  Í framtíðinni skal ég reyna að vanda betur efnisval á þennan blessaða vef minn.

Fara inn á bannaðan pistilinn
Notandi:
Aðgangsorð:

Lognið Stormsson

 

29.01.2004

Er ekki búinn að vera nenna uppfæra síðuna.  Í dag erum við að verða tilbúnir á netaveiðar.  Aðeins eftir að taka dreka og baujur um borð, en við gerum það ekki fyrr en iðnaðarmennirnir eru búnir með sína vinnu, þannig að við erum bara að bíða eftir þeim.

Annars er ekkert sérstakt að frétta.  Er að fara hjálpa Fjella með tölvuna hans, setja hana upp á nýtt og láta hann kaupa nettengingu hjá Magga Soffa (VDSL.IS), enda er hann búsettur í Soffa íbúð og þar er bara nettengi í veggnum. 

26.01.2004

Þá eru Ferrari búnir að frumsýna F2004 bílinn og kom útlit hans mörgum á óvart.  Bíllinn er við fyrstu sýn, næstum eins og F2003-GA bílinn.  Schumacher sagði sjálfur að bílinn væri mjög líkur bíl síðasta árs, sem honum minnti að hefði verið nægilega góður til að vinna ökumanns- og bílasmiða-titil í fyrra.  Þegar nánar er skoðað þá sjást ýmsir smávægilegir hlutir sem eru breyttir og eiga að skila betri loftfræðipakka, auk þess sem bílinn er knúinn af nýrri, léttari, aflmeiri og endingarbetri vél (053).  Þannig að framtíðin bíður bara upp á bjartsýni og vona ég að Ferrari vinni 1. & 2. sætið í keppni bílasmiða og 1-4 sæti ökuþóra á rauðu og bláu Ferrari bílunum (líklega ekki raunhæfur draumur, en....)  

En núna er vinnudagurinn búinn og erum við búnir að taka allt línu dótið í land og erum bara tilbúnir til að greiða (stundum kallað að steina niður, en líklega eru allir hættir að nota netasteina) niður netin þegar við mætum í fyrramálið.


Eldra efni hér að neðan:

Vika 5 (26.1-1.2)

Vika 4 (19.1-25.1)

Vika 3 (12.1-18.1)

Vika 2 (5.1-11.1)

Vika 1 (29.12.03-4.1.04)

Vika 52 (22.12-28.12)

Vika 51 (15.12-21.12)

Vika 50 (8.12-14.12)

Vika 49 (1.12-7.12)

Vika 48 (24.11-30.11)

Vika 47 (17.11-23.11)

Vika 46 (10.11-16.11)

Vika 45 (3.11-9.11)

Vika 44 (28.10-02.11)

Vika 43 (20.10-26.10)

Vika 42 (13.10-19.10)

Vika 41 (6.10-12.10)

Vika 40 (29.09-5.10)

Vika 39 (22.09-28.09)

Vika 38 (15.09-21.09)

Vika 37 (8.09-14.09)

Vika 36 (1.09-7.09)

Vika 35  (25.08-31.08)

Vika 33-34 (11.08-24.08)

Júlí 2003

Gömul forsíða

Eldri forsíða


Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á:

lognid@lognid.is