25.01.2004
Loksins kominn heim af sjónum. Við vorum nú fljótari enn reiknað var með, fylltum í þremur lögnum og vorum með stórann og góðan fisk. Þá eru línuveiðarnar búnar í bili og næst er að taka línudraslið í land og taka netadótið um borð. Svo er áætlað að leggja netin á föstudaginn og draga í fyrsta skipti á laugardaginn. Þá mun ég verða meira á dekkinu og vonandi leggja eitthvað af eftir frekar miklar þyngingar í haust (7kg). Annars er ég ekki einn um borð í Grundfirðingi, um að mega missa eitthver kíló á netunum, t.d. eru ónafngreindir skipstjórnarmenn að norðan og sveitamenn að norðan, einnig í hópnum (taki til sín sem eiga)
Annars er á morgun frumsýning Ferrari á 2004 bílnum!!!!! Það verður gaman að sjá hvernig framvængurinn lítur út, á að vera eitthvað sérstakur. Svo var ég að lesa á mbl.is að menn telji að Sauber C23 bílinn sé eftirlíking af F2003-GA bíl Ferrari frá í fyrra. Ég var búinn að átta mig á því strax við frumsýningu Sauber um daginn. Reyndar eru Sauber enn að þróa og prófa bílinn, þannig að endanleg mynd er ekki kominn á hann.
Svo var ég að uppfæra síðuna hennar Viktoríu frænku. SMELLA HÉR!!!
21.01.2004
Ég fer á sjóinn kl. 18 í dag, og verð næst heima á mánudaginn, svo ég bið bara að heilsa öllum, en munið að á mánudagsmorgun kl. 11:00 mun Scudera Ferrari Malboro F1 liðið frumsýna F2004 bílinn í Marinello á Ítalíu og verður sent út frá athöfninni beint á netinu.
Lognið

M
Schumacker (1) & R Barrichello (2) að prófa nýjan F2004 bíl Ferrari í
skíðaviku Ferrari (Wrooom 2004)

Og
auðvitað ekur besti ökumaður formula1 á FIAT Panda, bíl ársins
2004. L Badoer & M Schumaker.
Hérna er samt flott myndband með Ferrari, þeir bestu gera líka mistök (smá mistök hjá Schuma)
Ég fann í dag sniðugt íslenskt forrit sem hægt er að nota til að leita í Símaskránni, þjóðskránni og senda sms með, svo er hægt að fletta upp hlutabréfaverðum, en ég nota nú ekki svoleiðis þar sem Björgúlfur ávaxtar peningana mína vel enda hefur hann meira vit á peningum en ég. Slóðin er http://www.ingig.com
Mynd sem ég fann á netinu af eitthveri drottningu í útlöndum. Kunnuglegt andlit?

Er þetta Birgitta Haukdal??? Eða hvað??? Engu að síður flot!!!

Svona getur lífið verið skrítið.
20.01.2004
Loksins er maður kominn heim af sjónum, eftir langan og leiðinlegan túr. Það var ekkert fiskirí og því vorum við ekki í landi fyrr en í morgun. Svo munum við fara aftur á sjóinn, annað kvöld kl. 18. og vera komnir heim í síðasta lagi á mánudagsmorgun. Þá munum við fá eitthvað af iðnaðar mönnum til að klára smíða nýtt netaborð ásamt eitthverju föndri. Og já, loksins, loksins, munum við fara á net aftur. Þá er líklegt að ég verði heima flest öll kvöld og eigi svo frí á sunnudögum (messu frí). Ég hef nú reynt að halda mér í þjálfun fyrir netin með því að eyða inniverunum á netinu og þá oft í a.m.k. tveim tölvum í einu.
Ferrari F1 liðið hefur boðað að margir eigi eftir að verða hissa þegar 2004 bílinn verður frumsýndur, mánudaginn 26. janúar n.k., en þeir segja að framvængurinn sé eitthvað nýstárlegur.
Svo þarf örugglega ekki að segja ykkur að hann Kalli (gamall Grundfirðingur), vann IDOL keppnina með miklum yfirburðum. Kalli varð bjartasta von okkar Grundfirðingar eftir að stórsöngvarinn, Simmi IDOL, vinur minn, datt út úr keppninni, en það var aldrei spurning um annað en Grundfirðingur ynni keppnina.
Svo var ég að setja upp athugasemda kerfi á síðuna mína (aðalega fyrir Tomma), en allir hinir endilega verið dugleg að skrifa ykkar athugasemdir. T.d. hvað ykkur finnst um skrif mín í dag, vefsvæðið mitt, hvað ég er æðislegur, hvað þið saknið mín, eða eitthvað annað frá ykkar hjarta. Þeyr/þau sem eru með dónaskap eða annað niðrandi um mig og mína verða einfaldlega bannaðir eða rækilega kynntir fyrir Kúldaranum.
Kveðja
Eldra efni hér að neðan:
Vika 5 (26.1-1.2)
Vika 4 (19.1-25.1)
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: