14.01.2004

Þetta er nú bara svona með konur og bíla!!!!!!   SMELLA HÉR OG LESA

Ég var að lesa athyglisverða frétt um val á Bíl ársins 2004 og getið þið náð ykkur í hana með því að SMELLA HÉR  Auðvitað er það Fiat sem hreppir titilinn Bíll ársins 2004 enda vinnur Fiat titilinn að meðaltali á fjögura ára fresti, þ.e. 11 sinnum á 41 árum.  Reyndar hafa Fiat og Alfa Romeo hreppt titilinn Bíll ársins 5 sinnum á s.l. 10 árum, en Renault sem er með næst besta árangur bílaframleiðenda hefur hreppt titilinn 5 sinnum á 41 ári.

Á mánudaginn frumsýndi 2. liðið mitt í formula1 2004 árgerðina af keppnisbíl sínum, þ.e. Sauber-Petronas.  Bílinn er búinn 2004 árg. Ferrari V10 mótors (heitir Petronas 04A) og með sjö gíra Ferrari gírkassa.  Bílinn er mjög svo líkur F2003-GA bíl Ferrari, en í aðalatriðum er hann blár.  Bílinn er hannaður með það fyrir augum að geta þróað hann meira á keppnistímabilinu, en Sauber liðið tók í desember s.l. í notkun vindgöng sem eiga að hjálpa til við loftflæðihönnun bílsins.  Ökumenn liðsins voru báðir nýlega ráðnir til liðsins, en þeir eru ítalinn, Giancarlo Fischella (31), sem vann Brasilíu kappaksturinn 2003 (Jordan), og brasilíumaðurinn, Felipe Massa (23), sem var í fyrra tilraunarökuþór Ferrari, ók þar yfir 15þús. km.  Árið 2002 var Massa keppnisökuþór hjá Sauber, en það ár var frumraun hans í Formula1.

13.01.2004

Rólegur dagur,  fór í kaffi til nafna og fiktuðum í tölvunni hans í smá stund.

12.01.2004

Þá er ég kominn heim af sjónum, með fullfermi eftir 3 lagnir.  Já, við vorum bara nokkuð segir í þetta skiptið.  Núna eru eftir tvær veiðiferðir á línunni og svo skiptum við yfir á netin og þá verður gaman, gaman!!!  Þá verður maður líklega heima á kvöldin.


Eldra efni hér að neðan:

Vika 3 (12.1-18.1)

Vika 2 (5.1-11.1)

Vika 1 (29.12.03-4.1.04)

Vika 52 (22.12-28.12)

Vika 51 (15.12-21.12)

Vika 50 (8.12-14.12)

Vika 49 (1.12-7.12)

Vika 48 (24.11-30.11)

Vika 47 (17.11-23.11)

Vika 46 (10.11-16.11)

Vika 45 (3.11-9.11)

Vika 44 (28.10-02.11)

Vika 43 (20.10-26.10)

Vika 42 (13.10-19.10)

Vika 41 (6.10-12.10)

Vika 40 (29.09-5.10)

Vika 39 (22.09-28.09)

Vika 38 (15.09-21.09)

Vika 37 (8.09-14.09)

Vika 36 (1.09-7.09)

Vika 35  (25.08-31.08)

Vika 33-34 (11.08-24.08)

Júlí 2003

Gömul forsíða

Eldri forsíða


Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á:

lognid@lognid.is