9.9.2004
Í dag eiga Fannar Guðmundsson og Jóhannes Þorvarðarsson (skipstjóri) afmæli. Til hamingju með það.
Svo eru í dag 18 dagar í afmælið mitt.

Þessi
ítalski ökumaður, Vitantonio Liuzzi, gæti tekið við sæti Giancarlo Fishicella
hjá Sauber liðinu á næsta ári, þar sem Fisi mun fara til Renault. Liuzzi
var á dögunum að máta sæti hjá Sauber en hann mun reynsluaka bílnum þann 16.
september á Jerez-brautinni á Spáni. Liuzzi er búinn að tryggja sér
heimsmeistaratitilinn í Formula3000 með miklum yfirburðum á keppinautana líkt og
M.Schumacher í Formula1.
7.9.2004
Var að lesa athyglisverða frétt af mbl.is um netfíkn. Sjá alla fréttina SMELLA HÉR
Smá brot úr fréttinni:
Netfíkn eða netárátta færist í vöxt meðal ungra karlmanna undir þrítugu. Þeir ánetjast tölvuleikjum, einkum svokölluðum fjölda þátttökuleikjum, spjallrásum og ýmsu öðru sem Netið hefur upp á að bjóða. Afleiðingar eru þær að þeir vanrækja allt annað, svo sem nám, starf, vini og fjölskyldu.
Ég spila reyndar sjaldan tölvuleiki en nota netið talsvert mikið, en þar sem ég verð 30 ára eftir 20 daga þá hlít ég að læknast sjálfkrafa, þ.e. þetta hlýtur að þroskast af manni.
7.9.2004
Kominn heim af sjónum í veðurblíðuna í Grundarfirði. Ekki komum við heim með eins mikinn fisk og við hefðum viljað en hef ég trú á að það hafi verið af völdum voodoo galdra. En við fengum víst gesti af Geirfuglinum frá Grindavík um borð og voru þar Óli Brands (vélavörður), bróðir hans (stýrimaður) og einn háseti. Komu þessir menn færandi hendi og gáfu Jónasi lukkutröll og vasaklút. Vasaklúturinn kom sér víst vel fyrir Jónas því eftir að Geirfuglsmenn komu um borð fiskaðist nánast ekkert og teljum við að það tengist eitthvað ó-lukkutröllinu. Ég bara spyr, Ef þetta var lukkutröll, til hvers var þá vasaklúturinn???
Svo ætla ég að setja inn myndir frá veiðiferðinni inn rétt á eftir.
Myndirnar eru komnar SMELLA HÉR eða fara í myndasöfn.
7.9.2004
Faðir minn, Stormurinn átti víst afmæli 4.september. Til hamingju með afmælið.
2.9.2004
Hæ, á ég "elda" morgunmatin á laugardaginn
?...
A wife was making a breakfast of fried eggs for her husband. Suddenly her husband burst into the kitchen.
"Careful ... CAREFUL! Put in some more butter! Oh my GOD! You're cooking too many at once. TOO MANY! Turn them! TURN THEM NOW! We need more butter. Oh my GOD! WHERE are we going to get MORE BUTTER? They're going to STICK! Careful ... CAREFUL! I said be CAREFUL! You NEVER listen to me when you're cooking! Never! Turn them! Hurry up! Are you CRAZY? Have you LOST your mind? Don't forget to salt them. You know you always forget to salt them. Use the salt. USE THE SALT! THE SALT!"
The wife stared at him. "What the hell is wrong with you?
You think I don't know how to fry a couple of eggs?"
The husband calmly replied, "I wanted to show you what it feels like when I'm driving with you in the fucking car."
31.8.2004
Þá er maður kominn heim úr síðustu veiðiferðinni á kvótaárinu, en nýtt kvótaár hefst á morgun. Aflinn fyrir síðustu veiðiferð var kominn í 1.621 tonn og því ljóst að við erum ansi nálægt 1.660 tonnum. Af þessum afla eru tæplega 1.250 tonn þorskur eða u.þ.b. 75%

Giancarlo Fishichella og Felipe Massa, Sauber ökuþórar, voru að
vonum kampa kátir eftir glæsilegan árangur helgarinnar.
Svo var víst formúla um helgina og segja menn að þetta hafi
verið ein af betri keppnum ársins, alla vega fullt að gerast í brautinni. Fyrir
mína menn var þetta bara nokkuð gott en þeyr enduðu í 2. 3. 4. og 5. sæti í
keppninni. M.Schumaker (Ferrar) varð 2. og innsiglaði því 7. heimsmeistara
titil sinn. Rubens Barrichello (Ferrari) varð 3. eftir eitthvdr vandræði í
byrjun keppninnar, varð að fara inn strax að skipta um væng og var því orðinn
aftastur eftir 2-3 hringi. Svo varð hitt liðið mitt að brillera og skila sínum
besta árangri á árinu. Felipe Massa (Sauber) varð 4. og er það besti árangur
hans í F1 hingað til, en þetta er 2. árið sem hann keppir í F1. Massa
lenti í smá samstuð við Kimi Raikkonen í upphafi keppninar og strax á eftir
keyrið eitthver aftan á hann og varð hann að fara inn til að skipta um væng rétt
eins og landi hans R.Barrichello. Ítalinn Giancarlo Fishichella (Sauber)
endaði 5. og er það bara frábært að sjá Sauber liðinu ganga svona vel.
Skemmtilegast hefði þó verið ef vélin hjá Kimi Sprakkonnen hefði að vana
sprungið og við fengið að sjá bíla með Ferrari vélum í fyrstu 4 sætunum, en ég
verð víst að gera mér að góðu að hafa Ferrari-vélarnar í 2-5 sæti. p.s. Rúnar
bróðir, til hamingju með sigurinn hjá þínum manni og einnig til hamingju með að
McLaren skuli hafa skilað 2 bílum í mark.
Eldra efni hér að neðan:
Vika 36-37 (30.8-12.9)
Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: