26.8.2004

Vaknaði kl. 7:40 í morgun og ók Óla bróðir í vinnuna inn í Hraunsfjörð og fékk mér svo klukkutíma kríu eftir að ég kom heim.  Fór svo til Jónasar að fikta aðeins í nýjum IBM tölvum fyrir hann og frúna.  Svo kvaddi ég mömmu og gaf henni geisladisk með fjölskyldumyndefni sem ég skannaði fyrir hana.  því næst í búðina að sækja kostinn, en þar hitti ég hana Dagný Ágústsdóttir sem ég hef ekki hitt í meira en ár, en hún var að passa fyrir systur sína meðan hún þurfti að útrétta eitthvað fyrir bæinn okkar í Rvk.  Svo var farið um borð með kostinn, en þar hitti ég fyrir Bjössa vélstjóra og Axel Jespersen, sem verður vélavörður næsta túr meðan Bjarni yfirvélstjóri er í fríi.  Axel er víst bróðir hans Ragnars Jespersen sem bjó í Grundó fyrir eitthverjum árum síðan og vann sem bílstjóri hjá Hraðfrystihúsinu (síðar FISK) hérna á staðnum.  Svo er áætluð brottför kl. 18 og bið ég bara að heilsa í bili.



26.8.2004

Kom í land á þriðjudagsmorguninn og fór svo til Reykjavíkur fyrir hádegi.  Mamma hringdi þegar ég var kominn að Dalsmynni og tilkynnti mér að hún væri í Grundarfirði.  Það er víst búið að vera svo í sumar að mamma er aldrei heima þegar ég fer til Rvk.  Ég var að fara til sækja stundaskránna mína í Vélskólanum og láta breyta henni þannig að ég gæti verið í skólanum (með vinnunni) á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudagsmorgnum, en það gekk víst bara ekki upp núna og verð ég því bara að stytta mér stundir við eitthver áhugamál þessa umræddu daga sem ég er ekki að vinna.  Ég notaði því ferðina til að útrétta ýmislegt annað í borginni og var af nógu að taka og hafði ég eginlega engan tíma til að heimsækja vini mína en vonandi get ég gert það næst.  Hitti reyndar hann Sigga (Húsvíking) sem var með okkur á línunni eitthvað í vetur og bað hann að heilsa áhöfninni á Grundfirðing, en Siggi er að flytja til Danmerkur á næstu dögum til að fara í skóla.  Svo kom ég loksins heim í gær þriðjudagskvöld og komu þá mamma og Friðjón í heimsókn.


19.8.2004

Þar sem ég hef mikinn áhuga á tölum, tölfræði og formúlu1 þá hef ég tekið saman smá lista yfir árangur ökumanna í að bæta stöðu sína í keppnum ársins.  Alls hafa 22 ökumenn keppt á árinu og allir náð að bæta stöður sínar frá tímatökum. Ástæðurnar geta verið ýmsar t.d. ökumaður tekið framúr öðrum, komist framúr vegna þjónustustoppa, fremri bílar ljúka ekki keppni.

Keppendur sem hafa unnið sig upp um flest sæti:

Jarno Trulli, (renault)  ræsti 20 endaði 4 og vann sig upp um 16 sæti í Indianapolis.

Giancarlo Fisichella (Sauber) ræsti 20 endaði 6. og vann sig upp um 14 sæti á Silverstone.

Fernando Alanso (Renault) ræsti 19, endaði 7. og vann sig upp um 12 sæti á Sepang.

Kimi Raikkonen (McLaren) ræsti 20, endaði 8. og vann sig upp um 12 sæti á Imola

Felipe Massa (Sauber) ræsti 16, endaði 5. og vann sig upp um 11 sæti í Monte Carlo.

Zsolt Baumgartner (Minardi) ræsti 19, endaði 8. og vann sig up um 11 sæti á Indianapolis.

Nick Heidfeld, (Jordan) ræsti 17, endaði 7. og vann sig upp um 10 sæti í Monte Carlo.

Jenson Button (BAR) ræsti 12, endaði 2. og vann sig upp um 10 sæti á Hokenheim.

Cristiano da Matta (Toyota) ræsti 15, endaði 6. og vann sig upp um 9 sæti í Monte Carlo.

Timo Clock (Jordan) ræsti 16, endaði 7. og vann sig up um 9 sæti í Montreal (fyrsta og eina keppnin hans)

Cristian Klien (jaguar) ræsti 19, endaði 11 og vann sig upp um 8 sæti í Melbourne.

Rubens Barrichello (Ferrari) ræsti 10, endaði 3. og vann sig upp um 7 sæti á Magny-Cours.

Oliver Panis (Toyota) ræsti 20, endaði 13 og vann sig upp um 7 sæti í Melbourne.

Mark Webber (Jaguar) ræsti 14, endaði 7 og vann sig upp u 7 sæti á Nurburgring.

Gianmaria Bruni (Minardi) ræsti 20, endaði 14, og vann sig upp um 6 sæti í Monte Carlo

Michael Schumacher (Ferrar), Juan Pablo Montoya (Williams), David Coulthard (McLaren), Takuma Sato (BAR), og Giorgio Pantano (Jordan) hafa allir unnið sig upp um 5 sæti í keppni.

Ralf Schumacher (Williams) ræsti 18, endaði 13. og vann sig upp um 4 sæti í Melbourne.

Antonio Pizzonia (Williams) ræsti 10, endaði 7. og vann sig upp um 3 sæti á Hockenheim.

Svo eru það 15 ökumenn sem hafa klárað keppnir aftar en þeir ræstu og er listinn eftirfarandi:

.Juan Pablo Montoya (Williams), ræsti 3, endaði 13 og tapaði 10 sætum á Bahrain.

Takumo Sato (BAR), ræsti 7, endaði 16. og tapaði 9 sætum.

Jarno Trulli (Renault), Rubens Barrichello (Ferrar), Olivier Panis( Toyota), og Mark Webber (Jaguar) hafa allir tapað 5 sæti í keppnum.

Ralf Schumacher (Williams), David Coulthard (McLaren), Cristiano da Matta (Toyota) hafa allir tapað 3 sætum í keppnum.

Cristian Klien (jaguar og Marc Gene (Williams) hafa tapað 2 sætum í keppni.

Fernando Alanso (Renault), Kimi Raikkonen (McLaren) og Antonio Pizzonia hafa allir tapað 1 sæti í keppni.

Aðeins Michael Schumacher (Ferrari), Giancarlo Fisichella (Sauber), Felipe Massa (Sauber), Nick Heidfeld (Jordan), Giorgio Pantano( Jordan), *Timo Clock (Jordan), Zsolt Baumgartner (Minardi) og Gianmaria Bruni (Minardi) hafa allir bætt stöður sínar í keppnum en aldrei tapað stöðu.

Það sem má læra af þessari tölfræði er að aðeins einn bíll á Bridgestone dekkjum hefur tapað sæti í keppni á árinu og var það Rubens Barrichello (Ferrari) en allir bílar á Michelin dekkjum hafa eitthvern tíman á árinu tapað sæti til annars liðs.

En nóg af formúlu í bili.  Er að fara á sjóinn og get því ekki lesið föstudagsslúðrið hans Tomma á morgun og er það alveg skelfileg tilhugsun.  Sem betur fer erum við vanir að komast heim aftur og vonandi verður svo áfram.

kveðja

Lognið


           

18.8.2004

Það er nú bara ekki öll vitleysan eins. Núna er ég sagður fellibylur. Sjá frétt

Var að lesa nokkuð góða grein eftir Karl V. Matthíasson (SMELLA HÉR) um skattamál og velferðarsamfélagið, og verð ég að segja að ég er bara nokkuð sammála því sem stendur í greininni.  Þar ber hann saman fjármagnstekjuskatt og tekjuskatt.  Við launafólkið verðum víst að borga 38,58% af tekjum okkar í tekjuskatt og útsvar eftir að persónuafslátturinn er fullnýttur.  Allir eiga að borga sama tekjuskatt en t.d. iðnaðarmenn ásamt fleiri stéttum, hafa komið sér hjá því að borga þessa háu skattprósentu af launum sínum með því að stofna ehf fyrirtæki um vinnuna sína og greiða svo bara út hagnað fyrirtækisins til sín sem arð og greiða því af þeim launum, fjármagnstekjuskatt sem er 10%..  Kalli fór svona fljótt og einfalt yfir þetta og var í raun að benda áá að sveitarfélögin verða af miklum skatttekjum.  Ég hef svo haft fregnir af því að sumir iðnaðarmenn sem hafa tekið að sér verk utan sinnar heimabyggðar borga sér t.d. dagpeninga sem eru undanþegnir skatti upp að eitthveri lágri upphæð, en þegar upphæðin fer yfir þetta mark verða menn að koma með nótur fyrir uppihaldi vegna vinnunnar.  Sumir taka því einfaldlega nótur fyrir hlutum eins og mat (líka þegar konuini er boðið út og vín með) , ferðakostnaður (t.d. leigubílar á djamminu), bensínáfyllingar (og ekki bara á vinnubílinn).  Þannig eru menn í raun að stela peningunum sem ætti að nota t.d. til að gamla fólkið sem byggði upp fyrir okkar kynslóð, þurfi ekki að borga læknisþjónustu og lyf.
Fjármálaráðherra sagði fyrir ekki löngu að afnema ætti sjómannaafslátt, sem er sérstakur skattafsláttur sjómanna.  Ég er þeirra skoðunar að ef sjómannafsláttur verður felldur niður ættu sjómenn að fá fæðis og fatapeninga sína borgaða sem dagpeninga, vegna vinnu utan heimabyggðar og því ættum við að geta skilað inn nótum vegna fæðiskaupa, vinnufatakaupa og olíukostnaðarhluta áhafnarinnar  á móti dagpeningunum, eða ef sjómannaafslátturinn verður feldur niður að þá ætti að skattleggja allar dagpeningagreiðslur og ekki að leyfa mönnum að koma með kostnaðarreikninga á móti, þannig yrði jöfnuð staðan milli fólks sem vinnur fjarri heimabyggð líkt og sjómenn.

 

Kominn í land.  Skrifa meira seinna í dag eða kvöld.



Eldra efni hér að neðan:

Vika 34-35 (16.8-29.8)

Vika 32-33 (2.8-15.8)

Vika 31 (26.7-1.8)

Vika 30 (19.7-25.7)

Vika 29 (12.7-18.7)

Vika 28 (5.7-11.7)

Vika 27 (28.6-4.7)

Vika 26 (21.6-27.6)

Vika 25 (14.6-20.6)

Vika 24 (7.6-13.6)

Vika 23 (31.5-6.6)

Vika 22 (24.5-30.5)

Vika 21 (17.5-23.5)

Vika 20 (10.5-16.5)

Vika 19 (3.5-9.5)

Vika 18 (26.4-2.5)

Vika 16-17 (12.4-25.4)

Vika 15 (5.4-11.4)

Vika 14 (29.3-4.4)

Vika 13 (22.3-28.3)

Vika 12 (15.3-21.3)

Vika 11 (8.3-14.3)

Vika 10 (1.3-7.3)

Vika 9 (23.2-29.2)

Vika 8 (16.2-22.2)

Vika 7 (9.2-15.2)

Vika 6 (2.2-8.2)

Vika 5 (26.1-1.2)

Vika 4 (19.1-25.1)

Vika 3 (12.1-18.1)

Vika 2 (5.1-11.1)

Vika 1 (29.12.03-4.1.04)

Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.


Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á:

lognid@lognid.is