14.8.2004

Farinn á sjóinn á Grundfirðing

bless í bili


12.8.2004

Var bara bara í fríi í gær og gerði eitthvað voðalega lítið.  Byrjaði svo að vinna um borð í Grundfirðingi í morgun við að þrífa borðsalinn og eldhúsið eftir umgengnina í sumar. Strákarnir eru búnir að vera ganga frá eftir málningarvinnuna í morgun og byrjaðir að taka hluta af veiðafærum um borð.  Ekki getum við farið á sjóinn á morgun þar sem þá er föstudagurinn 13. og fyrir hjátrúarfulla gengur það auðvitað ekki og er betra að fara á laugardegi, þ.e. laugardagur til lukku.  Eitthvað er verið að spá í að fara eftir miðnætti annað kvöld, en ef það gengur eftir kemst maður ekki á dönskudagana í Stykkishólmi og verð ég þá væntanlega að biðja drykkjuhraustustu Hólmarana að bæta á sig einum bjór fyrir mig.  Hverjir eru annars drykkjuhraustastir í Hólminum? 

Ég er búinn að fá frí í kringum afmælið mitt sem verður eftir 46 daga.  Þá verður væntanlega drukkið eitthvað af bjór og djammað í 3-4 daga.

p.s. Ég hef verið að fá eitthverar heimsóknir á síðuna mína frá hinum ýmsu löndum, m.a, Danmörk og þar sem ég þekki ekki marga þar reikna ég fastlega með að þær séu frá Hilmari og jafnvel Helgu Stínu.  Ef þú lest þetta Hilmar sendu mér þá smá fréttir af þér eða a.m.k. e-mailið þitt á lognid@lognid.is

 

10.8.2004

Það er búið að vera mikið að gera síðustu daga og hef ég ekkert nennt að skrifa hérna.  Við Pétur tókum upp grásleppunetin og kláraðist það á föstudaginn.  Þrifum svo bátinn (Gugguna) og er hann hreinn og fínn.  Ekki gafst okkur tími til að halda upp á vertíðarlokin þar sem við fórum snemma á laugardagsmorguninn á Gæfunni á skak (handfæri) til að klára þessa klukkutíma sem voru eftir á henni.  Fórum á sjóinn kl. 2 í gærmorgun og komum heim kl. 22 um kvöldið og voru þá nákvæmlega 19 sólahringar búnir á Gæfunni í sumar og erum við þá búnir með tvær vertíðir á nokkrum dögum.  Svo fer ég að vinna um borð í Grundfirðing á fimmtudagsmorguninn og er áætlað að fara á sjóinn á laugardaginn.  Líklegast kíkir maður á dönsku dagana í Hólminum á föstudagskvöldið og heilsar upp á menn eins og Jón Sævar og Bjössa Kolla.

Svo er ég byrjaður að skipuleggja 30 ára afmælið mitt sem verður eftir 48 daga.  Ætla þá að fá frí á sjónum og skemmta mér konunglega. Meiri upplýsingar þegar hlutirnir fara að skýrast.

2.8.2004

Þá er maður kominn heim úr ferðalagi verslunarmannahelgarinnar.  Ákvað að hafa það bara rólegt og fór til Reykjavíkur.  Fór á föstudagskvöldið og kom við í Hólminum að sækja Jón Sævar en hann er alveg frábær jammari og ómissandi í svona ferð.  Fórum svo til Bjössa og Eyrúnar í nýju íbúðina þeirra.  Heltum í okkur nokkrum bjórum og fórum svo á Players í Kópavogi.  Þetta er nú þokkalega stór staður (aðeins of stór fyrir minn smekk). Svo var strikið tekið á Glaumbar og staldrað við í einn drykk.  Svo var farið á Dubliners og fundum við eitthverar ágætar fyllibyttur sem við fórum með á Amsterdam og vorum við þar fram undir morgun (kl. c.a. 7).  Svo á laugardagskvöldið fórum við í partý í Breiðholtinu og þaðan á eitthvern ömurlegan hverfispöb þar sem voðalega fáir voru.  Svo í bílskúrspartý og þegar líða tók á nótina fórum við að hitta eitthvað fólk í Perlunni.  Þar var að vísu ekki margt um fólk en þar tóku þrír þjónar á móti okkur (5) og var drukkinn einn bjór og svo farið niður í bæ.  Við Bjössi enduðum á Amsterdam þar sem var lifandi tónlist og slatti af fólki.  Á sunnudagskvöldið fórum við Jón Sævar aftur vestur, þar sem hann þurfti að fara vinna á mánudagsmorgunn kl. 5.
svo í dag sunnudag fór Bent bróðir með frændur mína, Systu og fleira gott fólk í sjóstangveiði á Hreggnesinu. Við Frank fylgdum svo á eftir á gúmmíbát og tókum einn og einn farþega yfir til okkar að leika sér smá.  Var því dagurinn í dag mjög svo skemmtilegur með bræðrum mínum, bróður sonum og fleira fólki.

Runni skipstjóri var svo seigur í dag að fara með túrista af skemmtiferða skipi sem stoppaði í Grundarfirði í dag til að sína þeim þorskana í eldinu hans.  Þorskeldið er einn af þeim hlutum sem er ómissandi að skoða ef menn eru á litlum bátum að sigla í Grundarfirði.

 


Eldra efni hér að neðan:

Vika 32-33 (2.8-15.8)

Vika 31 (26.7-1.8)

Vika 30 (19.7-25.7)

Vika 29 (12.7-18.7)

Vika 28 (5.7-11.7)

Vika 27 (28.6-4.7)

Vika 26 (21.6-27.6)

Vika 25 (14.6-20.6)

Vika 24 (7.6-13.6)

Vika 23 (31.5-6.6)

Vika 22 (24.5-30.5)

Vika 21 (17.5-23.5)

Vika 20 (10.5-16.5)

Vika 19 (3.5-9.5)

Vika 18 (26.4-2.5)

Vika 16-17 (12.4-25.4)

Vika 15 (5.4-11.4)

Vika 14 (29.3-4.4)

Vika 13 (22.3-28.3)

Vika 12 (15.3-21.3)

Vika 11 (8.3-14.3)

Vika 10 (1.3-7.3)

Vika 9 (23.2-29.2)

Vika 8 (16.2-22.2)

Vika 7 (9.2-15.2)

Vika 6 (2.2-8.2)

Vika 5 (26.1-1.2)

Vika 4 (19.1-25.1)

Vika 3 (12.1-18.1)

Vika 2 (5.1-11.1)

Vika 1 (29.12.03-4.1.04)

Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.


Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á:

lognid@lognid.is