28.7.2004

Torfi Freyr Alexandersson vinur minn bað mig að koma eftirfarandi auglýsingu á framfæri:

Hægt er að nálgast sömu auglýsingu á pólsku með því að SMELLA HÉRNA

 

26.7.2004

Þá er bæjarhátíðin okkar "Á góðri stundu í Grundarfirði" lokið og fannst mér hún heppnast frábærlega vel.  Það var sannarlega mikið að gerast um helgina og hitti ég alveg ótrúlega mikið af skemmtilegu fólki.  Sumt af þessu fólki hafði ég ekki séð í fjölda ára og var sérstaklega gaman að hitta fólk sem ég var næstum búinn að gleyma að væri til.  Ég kíkti á Sverrir Stormsker á Krákunni á laugardagskvöldið, en þar var ofboðslega mikið af fólki og hitti ég nokkra sem ég hafði ekki séð lengi eins og t.d. Súdda.  Mikið skvaldur og læti voru á Krákunni þannig að ekki heyrði maður mikið í Stormskerinu og fór ég því á ball með Kalla Bjarna og hljómsveit.  Var hljómsveitin bara hin besta ballhljómsveit og skemmti ég mér vel þar.  Hitti þar einnig fullt af skemmtilegu fólki eins og t.d. Önnu Clöru og Ellý systir hennar, nokkra ágæta Hólmara eins og Ásmund, Bjössa Kolla, Adda og Guðrún Svönu.  Svo tók ég eitthvað af myndum á símann minn á ballinu en vegna smá tæknilegs klúðurs hjá mér eyðilögðust þær myndir.  Í gær sunnudag fór ég í sögumiðstöðina að sjá mynd eftir "Dögg Mósesdóttur" um frænku hennar "Maríu Runólfsdóttir" þar sem María fer í ferðalag til Grænhöfðaeyja að hitta blóðmóður sína.  Fannst mér þessi mynd alveg frábær.  Sérlega finnst mér frábært hvað þetta ferðalag hefur gert Mæju ljóst hvað hún lifir góðu lífi í dag.  Mér fannst Viggi bróðir hennar vera soldið vandræðalegur þegar tekið var viðtal við hann, eins og eitthver feimni væri í gangi.  Svo sá maður einnig. Eyrúni Ösp og Sirrý Ödda í myndinni.



Eldra efni hér að neðan:

Vika 31 (26.7-1.8)

Vika 30 (19.7-25.7)

Vika 29 (12.7-18.7)

Vika 28 (5.7-11.7)

Vika 27 (28.6-4.7)

Vika 26 (21.6-27.6)

Vika 25 (14.6-20.6)

Vika 24 (7.6-13.6)

Vika 23 (31.5-6.6)

Vika 22 (24.5-30.5)

Vika 21 (17.5-23.5)

Vika 20 (10.5-16.5)

Vika 19 (3.5-9.5)

Vika 18 (26.4-2.5)

Vika 16-17 (12.4-25.4)

Vika 15 (5.4-11.4)

Vika 14 (29.3-4.4)

Vika 13 (22.3-28.3)

Vika 12 (15.3-21.3)

Vika 11 (8.3-14.3)

Vika 10 (1.3-7.3)

Vika 9 (23.2-29.2)

Vika 8 (16.2-22.2)

Vika 7 (9.2-15.2)

Vika 6 (2.2-8.2)

Vika 5 (26.1-1.2)

Vika 4 (19.1-25.1)

Vika 3 (12.1-18.1)

Vika 2 (5.1-11.1)

Vika 1 (29.12.03-4.1.04)

Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.


Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á:

lognid@lognid.is