23.7.2004
Þá er maður búinn að fara í grillveisluna sem var fyrir utan Kaffi 59 (Styrkt af Grundarval) og hlusta á Kalla Bjarna og ömmu hans syngja. Það var nú bara gaman að heyra þau syngja saman á finnsku. Svo verður auðvitað þjóðhetja Vestmannaeyinga "Árni Johnsen" að skemmta eitthvað hérna um helgina. Það gæti verið gaman að honum þótt hann sé nú ekki besti söngvari í heimi. Árni er nú Grundaravinur eftir tímabundna dvöl sína í byggðalaginu. Svo er í kvöld endurtekin vorgleðin frá í vor og svo á morgun verður Kalli Bjarni með hljómsveit í samkomuhúsinu og þá verður á sama tíma Sverrir nokkur Stormskér á Krákunni og trúbador á Kaffi59.
23.7.2004
Í gær byrjaði hátíðin "Á góðri stundu í Grundarfirði" með balli
á Krákunni með hljómsveitinni "Feik" sem skipuð er heimamönnum. Lognið
mætti á svæðið og var mun betri mæting í þar í gær fimmtudag heldur en á sama
tíma í fyrra. Hljómsveitin stóð sig mjög vel og eru þeir bara orðnir mjög
góðir. Ég er kominn í helgarfrí og ætla að skemmta mér vel um helgina.
Í dag munu mamma, Friðjón, þríburarnir (Daði, Ari & Ottó) ásamt fullt af öðru
skemmtilegu fólki koma til Grundarfjarðarborgar. Búið er að skreyta hverfi
bæjarins og er hann bara að verða flottari en venjulega.
Húsið mitt (ég og
Frank) er víst í bláa hverfinu og er það eina húsið í götunni minni í því
hverfi. Allir í minni fjölskyldu búa í gula hverfinu og er ég ekki alveg
sáttur, en eins og segir í uppáhalds laginu mínu með Pöpunum, "svona er lífið og
sama er mér, Allt í lagi"
Eldra efni hér að neðan:
Vika 30 (19.7-25.7)
Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: