9.7.2004
Fór aftur á sjóinn í morgun og var stefnan tekin hálfa leið inn í Stykkishólm, og þegar komið var að fyrstu trossu dagsins var smá kalda skítur (enda næstum komnir í Hólminn). Svo þegar komið var í næstu trossu sem var staðsett örlítið nær Grundó heldur en Hólminum var þar auðvitað logn og steikjandi sólskin. Reyndar varð sólskinið allt að smá vandamáli þegar leið á daginn því núna er ég líklegast rauðari en helvíti í andlitinu og á hálsinum og mjög stutt frá því að vera brunninn. Fer líklegast á handfæri á morgun og er ég eiginlega að vona að það verði ekki sól, en af eitthverum ástæðum þá virðist alltaf fylgja mér gott veður (sól og blíða), eins og er alltaf í Grundó.
8.7.2004
Búinn að vera fínn dagur. Fór í morgun á sjóinn með Pétri á Guggu SH. Það var bara gaman að komast í ferska sjávarloftið og draga net, enda finnst mér voða gaman að vera á sjó. Ekki skemmdi nú fyrir félagsskapurinn, enda er Pétur frekar léttur í lund og fannst mér ákaflega skemmtilegt hvað maðurinn er laus við allt stress. Fer aftur á grásleppu snemma í fyrramálið og svo líklegast á skak (handfæri), á Gæfu SH í eitthvera daga eftir það.
7.7.2004
Þá er maður kominn heim úr nokkuð vel heppnaðri borgarferð. Fer líklegast á sjóinn á trillu með Pétri ofursjóara af Sóley SH-124. Fyrst verður farið á Grásleppu og svo líklegast á handfæri á annarri trillu sem Pétur er með. Og svo á víst Rut Rúnarsdóttir afmæli í dag!!! Til hamingju með það Rut!
5.7.2004
Ég er búinn að hafa það mjög fínt í Reykjavík, fyrir utan að ég þurfti að búa um mig sjálfur heima hjá mömmu, þar sem hún var í ferðalagi.. Byrjaði á að hafa Sólrúnu með mér í bílnum á leiðinni suður og var það bara mjög fínt að hafa félagsskap og spjalla á leiðinni. Svo fórum við Sólrún í Smáralindina á kaffihús að hitta vini okkar Bjössa og Eyrúnu. Svo var farið í tívolí en Sólrún vildi ekki eða treysti sér ekki í nein tæki með okkur. Ég, Bjössi og Eyrún fórum saman í Parísarhjólið og svo í eitthvera flugdrekarólur sem snúast í hring á miklum hraða. Þar sem ég er frekar lofthræddur fannst mér alveg tilvalið að fara í Parísarhjólið til að reyna vinna smá bug á lofthræðslunni með Bjössa og Eyrúnu munandi það að þegar við vorum í París ´98 fórum við í 2x stærra Parísarhjól og ég er enn lifandi. Ekki leið mér vel í Parísarhjólinu núna frekar enn fyrr og fékk ég adrenalínið aðeins af stað í blóðinu og voru Bjössi og Eyrún enn á ný á því máli að ferðir í Parísarhjólum eru hundleiðinlegar nema hafa mig með! Ég hlýt að vera svona skemmtilegur félagsskapur? Svo fórum við öll að borða á Pizza Hut í Smáralindinni og fengum alveg þvílíkt lélega þjónustu, biðum í 20 mínútur eftir afgreiðslu, 60 mínútur eftir matnum, en þá kom bara helmingurinn af því sem við pöntuðum. Svo var okkur sagt að pizzurnar væru rétt að koma úr ofninum og svo næst þegar farið var að kvarta þá fengust þau svör að ekki væri byrjað að setja á pizzurnar og við þyrftum ekki að borga þær. Svo þegar átti að fara borga þá ætlaði stelpan í afgreiðslunni aðeins að gefa okkur 10% afslátt af öllu og láta okkur borga pizzurnar. Eyrún og Sólrún sáu nú um að við borguðum aðeins fyrir 90% af öðru en pizzunum en fyrir þær borguðum við ekki eins og sagt var í eldhúsinu. Svo skutlaði ég Sólrúnu til mömmu sinnar, en Sólrún er að fara í 6 daga ferð sem leiðsögumaður ferðamanna hringinn í kringum Ísland. Svo fer hún í sumarfrí til Ítalíu (þar sem allir fallegustu og bestu bílar heims eru framleiddir). Svo kíkti ég í heimsókn til Gauks og Bergdísar og fékk þar frábærar viðtökur (eins og alltaf) og því næst fór ég bara heim til mömmu og fékk mér tvo bjóra fyrir háttinn. Nennti ekki út á lífið (líklegast að verða g?m??l).
Svo vaknaði ég um kl. 11 á sunnudagsmorgni og fór til Gauks að horfa á formúlu kappaksturinn. Eins og þið getið lesið hér að neðan þá var Ferrari ekki alveg með bestu rásstaðina í dag, en þar sem þeir eru í augnablikinu svo langtum betri en hin liðin urðu úrslitinn nokkuð nálægt því eins og þau áttu að vera. M. Schumacher vann keppnina eins og alltaf þegar kókaínbaróninn (J.Montoya) keyrir hann ekki út úr brautinni og vinur minn Brasilíumaðurinn R. Barrichello sem ræsti 10. vann sig þaðan upp um hægt en sígandi með óaðfinnanlegum akstri og var kominn í 4.sætið þegar c.a. 10 hringir voru eftir með glæsilegum framúrakstri á J.Button og svo það rósin í hnappagat Barrichello var þegar hann tók fram úr J.Trullu í næstsíðustu beygju á síðasta hring keppninnar og tryggði sér þar með 3ja sætið, viðkomu á pall og opinbert blaðamanna viðtal. Svo kom Bjarni í bæjinn um kl. 18 og fórum við þá upp í Egilshöll á tónleika með hljómsveitinni Metallica. Metallica var að standa sig frábærlega og var svo gaman fannst mér eftir þessa tónleika að ég skil orðið menn sem voru að borga tvöfalt verð fyrir miðann. Ég fékk nú mína miða á kostnaðarverði hjá hinni frábæru Eyrúni og á þeim tíma fannst mér miðaverðið vera svolítið hátt, þótt ég sé ekki á þeirri skoðun í dag. Svo fannst mér einhvern veginn eins og þessi Egilshöll hefði getað tekið við a.m.k. 1000 manns í viðbót því það var mjög rúmt um fólkið aftast í salnum. Þannig að í raun ætti ekki að vera stórt vandamál að fá hljómsveitir hingað sem setja 20.þúsund manna lágmark. Kannski væri erfiðra að selja svona mikið af miðum ef það væri aldurstakmark og vínveitingarleifi á staðnum? Svo fyrir ykkur sem mistuð af tónleikunum þá er hérna smá hljóðdæmi af frábærum tónleikum og fyrir ykkur sem fóruð þá getur þetta nýst sem minning eða rifjar upp minninguna um tónleikanna (SMELLA HÉRNA NR1.) (OG HÉRNA NR.2) (ath. ekki mikil hljóðgæði þar sem þetta var tekið upp á GSM-símann minn). Skrá nr.2 er tekinn upp þegar þakið ætlaði að rifna af höllinni. Svo vorum við Bjarni svo heppnir að hitta myndarlegasta stúlknahópinn í höllinni, þær Hildi, Önnu Clöru og Ellý. Já sunnudagurinn var þvílíkt frábær dagur og hann endaði auðvitað með bestu hótelþjónustu í heimi, hjá mömmu þar sem hún var kominn heim og búinn að búa um mig. Á dagskránni er að stoppa aðeins lengur og sjá hvað mamma getur dekrað við mig. Ætli ég fái ekki líka eitthvað gott að borða?
Eldra efni hér að neðan:
Vika 28 (5.7-11.7)
Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: