3.7.2004

Þá var tímatökunni í F1 að ljúka og er staða efstu manna eftirfarandi.

1. F.Alanso á Renault.

2. M. Schumacker á Ferrari-Fiat

3. D. Coulthard á nýjum McLaren bíl (til hamingju með það Rúnar)  búmm? búmm?

4. J. Button á BAR-Honda

5. J. Trulli á Renault

6. J. Montoya á MBW Williams

7. T. Sato á BAR-Honda

8. M. Gene á MBW Williams

9. K. Sprakkönen á nýjum McLaren.

10. R. Barrichello á Ferrari-Fiat

15. G.Fisichella á Sauber Petronas (Ferrari vél og gírkassi)

16. F. Massa á Sauber Petronas (Ferrari vél og gírkassi)

Og líklegast verða Sauber á einu stoppi minna en flest hinna keppnisliðanna. A.m.k. er það vaninn hjá þeim.  Svo mun M.Schumacher væntanlega taka forustuna af F. Alanso í ræsingunni eða eftir viðgerðarstopp.  R.Barrichello þarf reyndar að hafa mikið fyrir því að komast ofar, en mun líklegast skríða eitthvað upp listann.  Bara spurning hve mikið 1-9 sæti?   Það sem er þó merkilegast er að D.Coulthard er á 3ja rásstað, en hann er hefur ekki verið vanur að standa sig í tímatökum síðan þetta fyrirkomulag var sett á þær.

Svo er ég að fara til Rvk. á eftir og ætla kannski að spilla Bjössa í kvöld!  (Ekki segja Eyrúnu frá því) og svo á morgun F1 keppnin í hádeginu og svo tónleikar með Metallica.

2.7.2004

Í dag eiga Arnar Kristjánsson (35), skipstjóri á Helga SH-135 og Kristinn Soffanías Rúnarsson (Soffi) afmæli.



1.7.2004

Undur og stórmerki gerast enn!  Loksins fékk ég vikublaðið Þeyr sent heim til mín, en það hefur bara komið til mín c.a. 2-5 sinnum á ári síðan Sædís tók við því.  Það er sem sagt kominn nýr ritstjóri og eigandi að blaðinu og finnst mér nýji eigandinn vera strax farinn að skila framförum við útgáfu blaðsins (þ.e. bera það heim til mín).  Ef frá er talinn útburðurinn á blaðinu þá er ekki hægt að segja að Sædís hafi staðið sig eitthvað illa.  En ég óska bara nýjum eigenda góðs gengis við útgáfu blaðsins og vona svo að ég fái blaðið heim í hverri viku.

 

30.6.2004

Gummi Palla á afmæli í dag!!!  Til hamingju með daginn Gummi.

Gummi Palla í París, sumarið 1998


 

Þar sem Helga Stína, systir mín, er að fara yfirgefa landið og búa í Danmörk í einhvern tíma, þá er íbúðin hennar til leigu á meðan.  Ef þið hafið áhuga þá endilega hafið samband við hana. 

Íbúð til leigu á Barónsstíg í Reykjavík 101.  Frábært útsýni og staðsetning

Íbúðin er 55 fermetrar í risi. Um er að ræða stofu og svefnherbergi (full lofthæð) og bað, eldhús og lítið herbergi(undir súð). Húsið er fjórbýli.

Íbúðin er mjög sjarmerandi, útsýnið fallegt og stutt í allar áttir.

Íbúðin leigist með húsgögnum og er leigð frá 1.ágúst eða 1. sept 2004 til  1. júní 2005). Hugsanlega lengur.

Verð er 80.000 ISK með húsgögnum, hita, rafmagni og hússjóði.

 

Nánari upplýsingar veitir Helga Stína í netfanginu helgastina@hotmail.com

 

28.6.2004

Það fá víst fleiri en ég bréf frá samkeppnisstofnun.  Sjá frétt af mbl.is SMELLA HÉRNA

Svo vill ég endilega benda fólki á hvað forrit frá Microsoft geta verið hættuleg. Frétt af mbl.is SMELLA HÉR Og frétt úr blaðinu Tölvuheimur SMELLA HÉRNA
Þar sem Microsoft er með yfirburða markaðsstöðu í útbreiðslu stýrikerfa og ýmissa annarra forrita, þá er auðvitað nærtækast að tölvuþrjótar og vírushöfundar reyni að herja á tölvur með hugbúnaði frá þeim.  Þannig að ef fólk notar ekki algengasta hugbúnaðinn eru minni líkur á árásum tölvuþrjóta.  Hvort hugbúnaður frá öðrum er eitthvað öruggari get ég ekki staðfest en ég hins vegar reyni að forðast að nota Internet Explorer.  Og þið sem viljið hætta að nota Internet Explorer og fá eitthvað öruggara (mitt mat) þá er á slóðinni http://www.mozilla.org/ hægt að finna ókeypis vafrana FireFox 0.9 eða Mozilla 1.7 og svo er auðvitað vaffarin sem er sagður bestur og fljótvirkastur frá Opera.com

Þá er það að verða ljóst að Ástþór verður ekki forseti (skrítið), né Baldur og að Ólafur verði áfram.  En ég náði mynd af kjörseðlinum hjá Óla bróðir.




Eldra efni hér að neðan:

Vika 28 (5.7-11.7)

Vika 27 (28.6-4.7)

Vika 26 (21.6-27.6)

Vika 25 (14.6-20.6)

Vika 24 (7.6-13.6)

Vika 23 (31.5-6.6)

Vika 22 (24.5-30.5)

Vika 21 (17.5-23.5)

Vika 20 (10.5-16.5)

Vika 19 (3.5-9.5)

Vika 18 (26.4-2.5)

Vika 16-17 (12.4-25.4)

Vika 15 (5.4-11.4)

Vika 14 (29.3-4.4)

Vika 13 (22.3-28.3)

Vika 12 (15.3-21.3)

Vika 11 (8.3-14.3)

Vika 10 (1.3-7.3)

Vika 9 (23.2-29.2)

Vika 8 (16.2-22.2)

Vika 7 (9.2-15.2)

Vika 6 (2.2-8.2)

Vika 5 (26.1-1.2)

Vika 4 (19.1-25.1)

Vika 3 (12.1-18.1)

Vika 2 (5.1-11.1)

Vika 1 (29.12.03-4.1.04)

Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.


Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á:

lognid@lognid.is