25.6.2004
Jæja, búinn að fá þær upplýsingar að Paparnir séu að spila úti
á Sandi í kvöld.
Heyrði einnig í Stebba í Ólafsvík og er hann víst búinn
að skipta um lífsstíl. Fór hann í meðferð og er hættur allri áfengis og
fíkniefnanotkun. GOTT HJÁ HONUM! Hann sagði alla vega að honum
liði bara frábærlega og vona ég bara að hann standi sig. Stebbi er
kominn með nýja bloggsíðu á slóðinni
aaboltinn.blogspot.com
Það er nú nokkuð flottur titilinn á síðunni hans, en hann er víst svona "Blogg
hjá AA bolta" og undirtitill "Dagbók Flauels, hugleiðingar geðsjúkling !!!"
Það eru víst Færeyskir dagar í Ólafsvík þessa helgina og er spurning hvort þar sé eitthvað skemmtilegt að gerast. Eitthver var að ljúga að mér að það sé ball með Pöpunum í kvöld, en ég hef reyndar hvergi fundið neinar upplýsingar um það.
Svo er hann
nafni minn víst farinn af landinu
með
eiginkonu sinni, alla leið til
Barcelona. Vonandi skemmta þau sér vel og verða ekki fyrir barðinu á
eitthverum helv...s hryðjuverkamönnum.
23.6.2004 kl. 21:05
Þar sem ég áttaði mig á því að samkeppnisstofnun mun líklega reyna gera tölvurnar mínar upptækar við húsleit, þá er ég búinn að setja slagbrand á útidyrnar, taka pinnann úr magasíninu (svo hægt sé að hafa extra mikið af skotum) á Kúldaranum, byrgja mig upp af 3,5" haglaskotum og tilbúinn að mæta samkeppnisstofnun þegar þeir koma í heimsókn. Einnig er ég búinn að byrgja mig upp af matvælum ef það tæki eitthverar vikur að berjast við þá.
23.6.2004
Úff, nú er ég líklegast grunaður um stóran glæp og er kominn undir smásjá samkeppnisstofnunar líkt og Baugur og olíufélögin. Ég ber samt við sakleysi uns sekt er sönnuð. Mér barst í dag tölvupóstur frá samkeppnisstofnun og bíð nú bara eftir fullum bílum af lögregluþjónum að framkvæma húsleit og gera heimilisbókhaldið upptækt.
Hér að neðan er bréfið birt í heild sinni svo þið getið sagt ykkar álit
To: lognid@lognid.is
Subject: Orðsending frá Samkeppnisstofnun vegna lénsins www.lognid.is
Orðsending frá
Samkeppnisstofnun
Ágæti viðtakandi, þann 16. apríl 2002 tóku
gildi lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu, nr. 30/2002. Í lögunum
er meðal annars að finna reglur um upplýsingaskyldu þeirra sem veita rafræna
þjónustu á Internetinu. Samkeppnisstofnun hefur eftirlit með því að
þjónustuveitendur fylgi 6.-7. gr. og 9.-11. gr. laganna í starfsemi sinni.
Á léninu sem tengt er því netfangi sem
orðsending þessi er send á, er veitt rafræn þjónusta í skilningi
framangreindra laga. Við skoðun á síðum á léninu kom í ljós að þær upplýsingar
sem þar er að finna uppfylla ekki ákvæði laganna, sérstaklega ekki 6. gr.
þeirra.
Tilgangur Samkeppnisstofnunar með því að
senda þessa orðsendingu er tvíþættur:
1. kynna lög nr. 30/2002 um rafræn
viðskipti og aðra rafræna þjónustu og vekja athygli á því að þau eiga við um
þjónustu sem veitt er á framangreindu léni;
2. hvetja yður til að aðlaga
upplýsingagjöf á heimasíðu lénsins til samræmis við lögin.
Á slóðinni
http://www.samkeppni.is/samkeppnislog/onnur_log/rafraen_thjonusta.pdf
er að finna samantekt varðandi þau
ákvæði laganna sem eftirlitsskylda Samkeppnisstofnunar lýtur að, þ.e. almennri
upplýsingaskyldu, upplýsingaskyldu vegna markaðssetningar og upplýsingaskyldu
í tengslum við samningsgerð. Þar er einnig að finna samantekt er varðar
upplýsingaskyldu vegna sölu á vöru eða þjónustu til neytanda um Internetið, en
um slík viðskipti gilda lög um húsgöngu- og fjarsölu nr. 46/2000.
Á slóðinni
http://www.samkeppni.is/samkeppnislog/onnur_log/rafraen_neytendur.pdf
er og að finna upplýsingar fyrir
neytendur um atriði sem þeir ættu að hafa í huga við kaup á vöru og þjónustu á
Internetinu.
Athygli skal vakin á að brot gegn 6.-7. gr.
og 9.-11. gr. laga um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu varða sektum.
Með kveðju,
Samkeppnisstofnun
Allar frekari upplýsingar veitir Anna Birna
Halldórsdóttir, virka daga milli kl. 11 og 12, í síma Samkeppnisstofnunar
552-7422.
Samkeppnisstofnun
Rauðarárstíg 10
Pósthólf 5120
125 Reykjavík
Sími 552 7422, bréfasími 562 7442
www.samkeppni.is
|
Vinsamlegast athugið
að þessi tölvupóstur og viðhengi hans eru eingöngu ætluð þeim sem
tölvupósturinn er stílaður á og gæti innihaldið upplýsingar sem eru
trúnaðarmál. Hafið þér fyrir tilviljun, mistök eða án sérstakrar heimildar
tekið við tölvupóstinum og viðhengjum hans er þess óskað að farið verði
eftir 2. mgr. 44. gr. laga um fjarskipti nr. 107/1999 og gæta fyllsta
trúnaðar, hvorki lesa efni hans né skrá það hjá yður né notfæra yður það á
nokkurn hátt og tilkynna sendanda samstundis að hann hafi ranglega borist
yður. Brot gegn þessu varða bótaábyrgð og refsingu skv. 57. gr. laganna. |
|
Hérna er 6.gr. laga nr. 30/2002 svo þið getið betur áttað ykkur á glæpnum. Ég að vísu sé engan glæp.
III. kafli. Upplýsingaskylda.
6.
gr. Almennar upplýsingar.
Þjónustuveitandi skal veita greiðan og samfelldan aðgang að eftirfarandi
upplýsingum um sig:
1. nafni,
2. heimilisfangi þar sem hann hefur staðfestu,
3. kennitölu,
4. póstfangi, netfangi og öðrum þeim upplýsingum sem
gera mögulegt að hafa samband við hann á greiðan hátt,
5. virðisaukaskattsnúmeri þjónustuveitanda,
6. þeirri opinberu skrá sem hann er skráður hjá, svo
sem hlutafélagaskrá, samvinnufélagaskrá eða firmaskrá, og
7. leyfi og eftirlitsaðila ef starfsemi hans er háð
leyfum.
Ef um lögverndað starf er að ræða skal þjónustuveitandi einnig tilgreina:
1. starfsheiti og í hvaða landi það er veitt,
2. samtök sem þjónustuveitandi eða fyrirsvarsmaður
hans er skráður hjá, og
3. gildandi starfs- eða siðareglur og með hvaða hætti
er unnt að nálgast þær.
Ef verð er gefið upp í tengslum við rafræna þjónustu skal það gert með skýrum
og ótvíræðum hætti. Þegar rafrænni þjónustu er eingöngu beint að íslenskum
neytendum skulu skattar innifaldir í verði.
21.6.2004
Ég á svo mikið af góðum bræðrum. Einn þeirra, Rúnar
Russel sem býr í Luxemburg, á afmæli í dag!!!! Til hamingju með
daginn Rúnar!!! Til að móðga ekki afmælisbarnið verður árafjöldinn
ekki gefinn upp.
Eldra efni hér að neðan:
Vika 28 (5.7-11.7)
Vika 27 (28.6-4.7)
Vika 26 (21.6-27.6)
Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: