19.6.2004
Það virkar ekki í augnablikinu commenta kerfið á síðunni hans
Tomma, en ég vildi segja honum að fyrst Ítalirnir væru ekki að standa sig í
þessum heimska leðurtuðrusparkleik, sem ég skil ekki að sé gaman að horfa á, þá munu líklegast
hinir rauðu ítölsku bílarnir* halda uppi heiðri Ítalíu og skila því sem þarf til að vera bestir
!!!!
*Ítalskir bílar = fallegir bílar =
Alfa Romeo,
Ferrari,
Fiat, Lamborgini, Lancia,
Maserati.
18.6.2004
Seinni frjálsuæfingarnar í dag!
1. Barrichello Ferrari F2004 B 1:10.365 +00:00.000 +00:00.000
2. Davidson B.A.R 006 M 1:10.967 +00:00.602 +00:00.602
3. Montoya Williams FW26 M 1:10.982 +00:00.617 +00:00.015
4. M Schumacher Ferrari F2004 B 1:11.036 +00:00.671 +00:00.054
5. Button B.A.R 006 M 1:11.230 +00:00.865 +00:00.194
6. R Schumacher Williams FW26 M 1:11.530 +00:01.165 +00:00.300
7. Da Matta Toyota TF104 M 1:11.893 +00:01.528 +00:00.363
8. Panis Toyota TF104 M 1:11.994 +00:01.629 +00:00.101
9. Zonta Toyota TF104 M 1:12.019 +00:01.654 +00:00.025
10. Raikkonen McLaren MP4-19 M 1:12.197 +00:01.832 +00:00.178
11. Webber Jaguar R5 M 1:12.438 +00:02.073 +00:00.241
12. Trulli Renault R24 M 1:12.441 +00:02.076 +00:00.003
13. Fisichella Sauber C23 B 1:12.537 +00:02.172 +00:00.096
14. Sato B.A.R 006 M 1:12.601 +00:02.236 +00:00.064 Óhapp
15. Wirdheim Jaguar R5 M 1:12.761 +00:02.396 +00:00.160
16. Klien Jaguar R5 M 1:12.950 +00:02.585 +00:00.189
17. Massa Sauber C23 B 1:13.196 +00:02.831 +00:00.246
18. Baumgartner Minardi PS04B B 1:13.384 +00:03.019 +00:00.188
19. Glock Jordan EJ14 B 1:13.446 +00:03.081 +00:00.062
20. Alonso Renault R24 M 1:13.732 +00:03.367 +00:00.286 Spin
21. Heidfeld Jordan EJ14 B 1:14.174 +00:03.809 +00:00.442
22. Pantano Jordan EJ14 B 1:14.407 +00:04.042 +00:00.233
23. Leinders Minardi PS04B B 1:14.409 +00:04.044 +00:00.002
24. Bruni Minardi PS04B B 1:14.428 +00:04.063 +00:00.019
25. Coulthard McLaren MP4-19 M engin tími + +Rafmagnsbilun
Þá erum við Frank búnir að gæða okkur á kjúklingnum og var hann alveg meiriháttar góður. Alveg ótrúlegt hvað góður ofn skiptir miklu máli. Núna eru seinni frjálsu æfingarnar í F1 að byrja og því best að fara fylgjast með.
Flöskudagur í dag og hvað gerum við þá? Er að spá í að
gefa Frank bróðir kjúkling í kvöld ef hann kemur ekki seint heim af sjónum.
Helgin byrjar vel hjá Ferrari og á fyrri frjálsu æfingum dagsins varð Rubens
Barrichello fljótastur og félagi hans M.Schumacker kom fast á eftir.
Italinn Giancarlo Fisichella á Sauber varð 8. hraðastur og félagi hans F.Massa
varð 14. á nýju eintaki af keppnisbílnum.
17.6.2004
Í gær hringdi pabbi og sagðist vera að horfa yfir til
Rússlands. Hann var þá staddur í Finnlandi ásamt systur
sinni. Svo veit enginn hvar hann verður á morgun, því kallinn fer
stundum langt yfir á einum degi
14.6.2004
Í gær var heldur betur skemmtilegur formúlu1 kappakstur í
Montreal, Canada. Hinn nánast óstöðvandi ökumaður, Michael
Schumacer hafði heldur betur heilladísirnar með sér enda er talan 7 oftast
talin happa tala. Sjúmmi vann sig úr 6.sætinu í það 1. og setti
nýtt met í formúlubækurnar með því að verða fyrstur ökumanna til að
vinna 7 keppnir á sömu brautinni, þ.e. 1994, 1997, 1998, 2000, 2002, 2003
og 2004. Þetta var einnig 77 sigur hans á ferlinum, 7 sigur hans á
árinu sem skilar honum líklega 7. heimsmeistara titli
ökuþóra.
Ralf litli bróðir hans Sjúmma ræsti fremstur en
missti sætið sitt fyrst til stóra bróður og varð annar eftir keppnina á
undan Barra Ferrari ökuþór. Síðar missti Ralf 2. sætið sitt til
Barra vegna þess að BMW Williams liðið var dæmt úr keppninni ásamt
Toyota liðinu vegna ólöglegs bremsubúnaðar á framhjólum.
Þessi
dómur hafði í för með sér að 3 ökuþórar í stigasætum misstu sín
stig til annarra ökuþóra og græddu McLaren og Jordan liðin mest á
því. Þar með komust t.d. David Coulthard (McLaren), Nick Heidfeld (Jordan)
og Timo Clock (Jordan) upp í stigasæti, auk þess sem Rubens Barrichello
(Ferrari), Jenson Button (BAR) Giancarlo Fishichella (Sauber), Kimi Räikkönen
(McLaren) færðust allir upp og fengu aukin stig.
Þetta kom víst allt í
ljós 4 tímum eftir keppnina þegar dómarar höfðu skoðað bílana.
Eldra efni hér að neðan:
Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: