12.6.2004
Þá er hægt að fá enska, pólska, franska og sænskar útgáfur af síðunni minni (hehehe)
Click
here for english translation (Enska) Trzaskać tutaj pod kątem polski tłumaczenie
(Pólska) Faire un déclic voici pour Français traduction
(Franska) Klick här för svensk översättning
(Sænska)
11.6.2004
SUMARFRÍ!!! Við komum í land um 6 leitið og vorum að hreinsa skipið fyrir slippinn eitthvað aðeins fram yfir hádegið. Kokkurinn nennti ekki að elda og fór því í Kaffi 59 og keypti pizzur fyrir liðið í hádeginu. Hann steikti þó sjálfur franskar með herlegheitunum. Almennilegur kokkur.
Svo kíkti ég í heimsókn til Roberts eftir vinnuna og þá
til Óla bróður. Óli
gaf mér nú bjór og varð ég alveg afskaplega þreyttur eftir hann, og
því get ég ekki skrizzzz zzzzzzz
Já sko, núna er herra F-frá Grundarfirði búinn að fá
lag tileinkað sér!!! SMELLA
HÉR
7.6.2004
Í gær var nýjasta Formulu 1 brautin formlega vígð. Var við hæfi að fyrsti bílinn sem þar ók var Ferrari F1 2003-GA. Það kom í hlut Gerhard Berger, f.v. yfirmanns keppnisvéladeildar BMW og f.v. keppnisökuþórs Ferrari að keyra fyrstu hringina. Berger var mjög svo ánægður með heiðurinn og lýsti mikilli ánægju með hvað brautin væri skemmtileg keppnisbraut. Jafnframt óku 55 Ferrari og Maserati bílar á brautinni áður en keppni í Formula Renault fór fram á brautinni.
Við þetta tækifæri var Jean Todt liðsstjóri Ferrari spurður um hvenær við mættum eiga von á því að M.Schumacker hætti kappakstri og svaraði hann því svo að ef Schumi vildi vera lengur en til 2006 þá væri honum velkomið að keyra áfram fyrir Ferrari.
![]()
Ferrari
F1 2003-GA á brautinni í Shangai og á viðgerðarsvæðinu sést fjöldinn
allur af Ferrari og Maserati bílum sem óku síðar í brautinni
Svo fær Giancarlo Fisichella, Sauber ökuþór loksins að keyra fyrir Ferrari Maserati group, en þó fær hann ekki að keyra Ferrari. Hann mun keppa á Maserati MC-12 bíl á Imola brautinni á Ítalíu í september. Maserati hefur ekki keppt í neinum alvöru aksturskeppnum í fjöldann allan af árum, en núna ætla þeir að mæta aftur með þennan líka öfluga og flotta bíl. Í byrjun árs var talað um að Fisichella yrði að prufukeyra fyrir Ferrari á árinu eins og hinn Sauber ökuþórinn Felipe Massa, en af því hefur ekki getað orðið vegna tæknilegra vandamála (lögfræðinga mál). Massa er samningsbundin hjá Ferrari og er lánaður til Sauber sem keppnisökuþór og klæðist því Sauber galla eða Ferrari galla eftir þörfum, en þar sem Fisichella er samningsbundin hjá Sauber Petronas má hann ekki klæðast fatnaði merktum samkeppnisaðila Petronas (Shell), og er það aðal vandamálið með að hann fái að aka fyrir Ferrari.


Þetta
er Maserati MC-12 bíllinn og verða aðeins framleiddir 25 á árinu til sölu
á almennan markað (þ.e. fyrir ykkur sem eigið peninga)
Eldra efni hér að neðan:
Vika 25 (14.6-20.6)
Vika 24 (7.6-13.6)
Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: