6.6.2004

Í dag er sjómannadagurinn.

4.6.2004

Þá er víst sjómannadagshelgin runnin í garð.  Verið að undirbúa grill-veisluna sem verður heima hjá Jónasi skipstjóra á morgun.  Aðeins eftir að fara í ríkið og sækja hæfilegan skammt af söngvatni.  Í kvöld munum við halda skipulagsfund þar sem stýrimaðurinn mun búa til maríneringu á höfrunginn og vélstjórinn græjar kartöflusalat.  Líklega verða eitthverar veitingar (söngvatn) á boðstólnum og því ætla ég að mæta.

Þá er maður farinn á vinnufund.  Hvenær haldið þið að komi næst nýtt efni hérna???? Dagur og klukka!

1.6.2004

Þá er ég kominn í land.  Við komum rétt fyrir kl. 10 í morgun.  Kjartan Jakob Valdimarsson (Daddi stýrimaður) er loksins fluttur til byggða af hinu afskekta Hauganesi.  Já, Hauganesi hmmm, ekki skrítið að sumir hrista hausinn enda er Hauganes rétt sunnan við mörk hins byggilega heims.  Fyrir ykkur 98% af lesendum þessa vefs, sem ekki vita hvar Hauganes er, þá er Hauganes nánar tiltekið rétt fyrir norðan Akureyri en sunnan við Dalvík.  Sumir vilja reyndar telja Hauganes undir Dalvíkurbyggð (þ.e. póstáritun 621 Dalvík) en GUÐ hjálpi þeim sem seigja, nefna eða spyrja Dadda hvort hans sé frá Dalvík.  Við vorumeldsnöggir, áhöfnin á Grundfirðing, vorum c.a. 40 mínútur að færa búslóðina hans inn úr flutningabílnum frá BB & synir (þ.e. Saurarnir).

Svo vorum við Frank bróðir að vígja í kvöld nýja ofninn minn, en Frank var eitthvað búinn að fikta í helluborðinu meðan ég var á sjónu.  Það var smá veisla, og auðvitað var lambasteik að hætti Franks.  Þeir sem hafa smakkað veislurnar mína, Frank eldar c.a. 50% betur (ef hann nennir).  p.s. og mamma 1000% betur, en hún var ekki á staðnum og engin slær henni við.  Okkur er þetta í blóð borið (frá mömmu), sérstaklega sósurnar.  Smá rauðvín með og bara gaman.

p.s. á meðan ég var á sjónum þá fór lesendafjöldi vefsins míns yfir 10.þúsund og er ég afskaplega kátur með það.  Sérstaklega þar sem hver heimsókn frá sömu tölvu teljist aðeins einu sinni á sólahring.  Ef þú t.d. kíkir 5 sinnu á dag ertu aðeins talin einu sinni.  Nema auðvitað þú ferð í delete cockies á milli, sem fæstir gera, nema Jónas Sigmarsson.

Svo auðvitað vill ég óska uppáhalds fyrrverandi tengdamömmu minni (Eddu Kristjánsdóttir) til hamingju með afmælið í dag.  Ef ég man rétt þá lenti hún í því að fá þá villu í vegabréfið sitt að hún væri fædd 18xx, þ.e. 100 árum fyrr en hún er fædd og samkvæmt vegabréfi því búin að lifa í rúmlega eina og hálfa öld.  GERI AÐRIR BETUR!!!


Eldra efni hér að neðan:

Vika 25 (14.6-20.6)

Vika 24 (7.6-13.6)

Vika 23 (31.5-6.6)

Vika 22 (24.5-30.5)

Vika 21 (17.5-23.5)

Vika 20 (10.5-16.5)

Vika 19 (3.5-9.5)

Vika 18 (26.4-2.5)

Vika 16-17 (12.4-25.4)

Vika 15 (5.4-11.4)

Vika 14 (29.3-4.4)

Vika 13 (22.3-28.3)

Vika 12 (15.3-21.3)

Vika 11 (8.3-14.3)

Vika 10 (1.3-7.3)

Vika 9 (23.2-29.2)

Vika 8 (16.2-22.2)

Vika 7 (9.2-15.2)

Vika 6 (2.2-8.2)

Vika 5 (26.1-1.2)

Vika 4 (19.1-25.1)

Vika 3 (12.1-18.1)

Vika 2 (5.1-11.1)

Vika 1 (29.12.03-4.1.04)

Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.


Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á:

lognid@lognid.is