28.5.2004
Það er sérstaklega stutt á milli keppna núna í
formúlunni. Um síðustu helgi var Monaco en núna um helgina verður Nurburgring
í Þýskalandi. Á síðustu árum hefa að jafnaði verið keppnir
aðra hverja helgi en núna, frá og með Monaco eiga að vera 6 keppnir á 8
vikum.
Í morgun voru frjálsar æfingar fyrir keppnina á sunnudaginn og
átti Kimi Raikkonen bestan tíma dagsins. Barri var með 6. besta
tíman og Sjúmmi með 9. besta tíman. Munur á 11 hröðustu bílunum
var innan við 1 sekúnda á hringinn.
Sauber liðið lenti í smá
vandræðum. Vélin hjá Fissa bilaði og varð að skipta um hana og
færist hann því niður um 10 sæti í ræsingunni miðað gang
tímatökunnar á morgun. Þar sem Sauber bílarnir hafa að jafnaði
verið að ræsa í kringum 10. sæti gætu þeir líklega ákveðið að
Fissi verði með mikið bensín í tímatökum og byrjun keppninnar og taki 1
eða 2 viðgerðarhlé meðan aðrir taki 2-3 hlé. Massa tókst að ná
7 besta tímanum í morgun en eftir hádegið átti hann í eitthverum
vandræðum með rafkerfið í bílnum og hætti æfingum snemma.
Verst þykir mér að vera alltaf úti á sjó um helgar og
geta ekki fylgst með formúlunni í beinni útsendingu en það fer að
lagast því það styttist í sumarfríið.
Ég var að taka saman smá tölulegar upplýsingar um störf
mín á skipum yfir 12 tonnum og komst að því að ég hef verið skráður
2653 daga, þ.e. c.a. 7 ár og 3 mánuði. 26% af þessum tíma
hef ég verið matsveinn, 12% netamaður og 62% háseti. Ég hef verið
skráður 832 daga á Runólfi SH-135 (1408), 769 daga á Hring SH-535 (1773),
893 daga á Grundfirðing SH-24 (1202), 122 daga á Fanney SH-24 (1964) og 38
daga á öðrum bátum. Þess má geta að ég var fyrst skráður til
sjós 16.12.1991 á Fanney í 5 daga.
25.5.2004

Það er makalaust hvað Sauber gamli var ánægður með 5.sætið og stigin 4 sem Massa færði liðinu um helgina. Mynd tekin af vef Sauber.
24.5.2004
Þá er ég kominn heim af sjónum og ætla að vera heima fram á fimmtudag kl. 18. Það er voða lítið að frétta. Bjössi er víst enn einu sinni kominn á Grundfirðing og hefur núna tekist að hrista af sér "fiskifælu" orðsporið sem hann fékk í vetur, enda batnandi mönnum best að fiska.
Svo vildi ólíklega til að hlé varð á sigurgöngu M.Schumacker
og Ferrari-manna en notast var við eina mögulega ráðið til að stöðva
hana, þ.e. að keyra á Sjúmma og skemma Fiat-inn hans. Barri lenti í
smá óhappi snemma í keppninni og varð hans fákur eitthvað erfiður í
meðförum en hann skilaði sér þó á pallinn í 3ja sæti. Þess má
einnig geta að Barri átti afmæli s.l. sunnudaginn þegar keppnin var í
Monaco.
Svo var nú gleðilegt að Felipe Massa, Sauber ökuþór &
reynsluökuþór Ferrari, halaði inn 4 stigum og kom þar með Sauber liðinu
í 5. sæti keppnisliða á kostnað McLaren sem núna er í 6. sæti. Felipe
Massa er núna í 9.sæti ökuþóra. Giancarlo Fisichella varð hins
vegar fyrir akstursóhappi þegar Honda-vél í BAR-bíl Takumo Sato
sprakk. Varð svo mikill reykur úr bílnum að Fisichella sá ekki
David Coulthard fyrir framan sig og ók aftan á hann með þeim afleiðingum
að báðir urðu að hætta keppni. Sauber bíll Fisichella valt á 140km
hraða en Fissi slapp ómeiddur.
Norðmenn eru víst búnir að gefast upp á því sem
íslendingar gáfust upp á, þ.e. að reyna bjarga Guðrúnu Gísladóttir af
hafsbotni. Sjá
nánar frétt á skip.is
Eldra efni hér að neðan:
Vika 25 (14.6-20.6)
Vika 24 (7.6-13.6)
Vika 23 (31.5-6.6)
Vika 22 (24.5-30.5)
Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: