19.5.2004

Kl. 18:12   Þá er bara farið að snjóa í Grundarfjarðarborg.  Og ég bara hrósa happi yfir að vera enn á nöglum að aftan og glænýjum dekkjum að framan.

Vá hvað sumt fólk getur verið skrýtið!  Fann hérna smá grein á malefnin.com um hvað fólk getur verið furðulegt.  SMELLA HÉRNA OG LESA
Ég hélt að ég væri pínu skrítinn en svona fólk afsannar það fyrir manni.  Ja, hvert þeirra er nú skrítnast? Karlmaðurinn, mamman, dóttirin eða öll veik?

Spurning:  Af hverju fer Davíð Oddsson alltaf að sofa fyrir klukkan 22 á kvöldin?



Ég fékk agalega flottan pakka í póstinum í gær, alla leið frá Vesturheimi.  Í þessum pakka var bolur merktur þessu fjarlæga landi (Canada) og svo risa stór og flott bók um skip.  Það eru myndir og lýsingar á 5000 skipum smíðuðum á árunum 3200 f.k. til dagsins í dag.  Þetta er eitthvað uppfletti rit sem á eftir að endast nokkra mánuði.  Takk Emilía, 1000 þakkir.

18.5.2004

Þá er maður loksins kominn heim.  Aflabrestur olli því að ég kom ekki heim í gær morgun.  En það eru bjartari tímar framundan.  Bjössi mætir loksins næsta túr eftir að hafa verið meira og minna í fríi frá því í haust.  Bjössi mun væntanlega hafa meðferðis 2.stigið sem hann þrælaði fyrir í skólanum í vetur.  Svo eru tvær veiðiferðir eftir fyrir sjómannadag og erum við byrjaðir að skipuleggja helgina.  Við höfum titil að verja frá síðasta ári, þ.e. besta áhöfnin í liðakeppni.  Liðakeppnin í fyrra var samsett af keppnisgreinum sem hentuðu aðalega togbátasjómönnum eins og t.d. pokahnútur og netabætning.  Svo voru þarna auðvitað greinar sem allir áttu sömu möguleika í eins og trukkadráttur, kararóður, brúsahlaup og línuganga.  En ég myndi alveg vilja sjá keppni í að splæsa saman spotta.  Það tilheyrir öllum veiðafærum að splæsa.   En eins og allir vita þá unnum við þetta í fyrra.   



Landaður afli á Grundfirðingi SH-24 frá 1.sept. 2003 til 10.maí 2004 er 1.414 tonn og 578 kg.  Mestmegnis er þessi afli þorskur eða 1048 tonn sem gera 74% af heildaraflanum.


Eldra efni hér að neðan:

Vika 25 (14.6-20.6)

Vika 24 (7.6-13.6)

Vika 23 (31.5-6.6)

Vika 22 (24.5-30.5)

Vika 21 (17.5-23.5)

Vika 20 (10.5-16.5)

Vika 19 (3.5-9.5)

Vika 18 (26.4-2.5)

Vika 16-17 (12.4-25.4)

Vika 15 (5.4-11.4)

Vika 14 (29.3-4.4)

Vika 13 (22.3-28.3)

Vika 12 (15.3-21.3)

Vika 11 (8.3-14.3)

Vika 10 (1.3-7.3)

Vika 9 (23.2-29.2)

Vika 8 (16.2-22.2)

Vika 7 (9.2-15.2)

Vika 6 (2.2-8.2)

Vika 5 (26.1-1.2)

Vika 4 (19.1-25.1)

Vika 3 (12.1-18.1)

Vika 2 (5.1-11.1)

Vika 1 (29.12.03-4.1.04)

Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.


Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á:

lognid@lognid.is