13.5.2004

Fer á sjóinn á Grundfirðingi í dag og kem ekki heim aftur fyrr en á mánudag eða þriðjudag.  Er voða lítið búinn að gera í dag og geri líklega lítið það sem eftir er dags.  Bið bara kveðju til ykkar landkrabbanna.

Lognið 

12.5.2004

Fór á sjóinn í morgun kl. 7 og fór á grásleppu með bræðrum mínum. Við vorum svo heldur fljótari á leiðinni því báturinn gekk c.a. 0,5-1 sjómílu hraðar á þeirri leið.  Hérna eru myndir úr veiðiferðinni.

Og svo á Bjössi afmæli í dag!!  Til hamingju Bjössi!!!

 

11.5.2004

Þá er maður kominn aftur heima af sjónum.  Núna var ég með tveim bræðrum mínum á Grásleppuveiðum.

10.5.2004

Ég er að fara á sjóinn kl. 7:00 í fyrramálið og verð eitthvað fram eftir degi.  Núna ætla ég að reyna fyrir mér á Grásleppuveiðum, en það er fiskur sem Fiskistofa hefur hingað til bannað okkur (á Grundfirðing) að landa, en sagt okkur að henda aftur í sjóinn.  Núna fer ég á bát sem heitir Hreggnes SH-173 og er þar skipstjóri, Bent Russel og vélstjóri Frank Russel

Ég kom í land kl. 12:30 í dag og byrjaði ég á því að skutlast með engilinn okkar, á Grundfirðingi, til Stykkishólms þar sem hann ætlaði með Baldri yfir Breiðafjörðinn.  Svo fór ég að heilsa upp Alla á Dekk & Smur, og fékk hann til að umfelga fyrir mig dekk undir Fiat-inn minn.  Svo kíkti ég í kaffi og spjall til Stormsins, en núna er ég kominn heim.

Á laugardaginn 8.maí átti Bent bróðir minn stórafmæli og bauð hann til veislu í Fákaseli. Af tillitssemi við Bent verður aldurinn ekki gerður opinber. 


Eldra efni hér að neðan:

Vika 19 (3.5-9.5)

Vika 18 (26.4-2.5)

Vika 16-17 (12.4-25.4)

Vika 15 (5.4-11.4)

Vika 14 (29.3-4.4)

Vika 13 (22.3-28.3)

Vika 12 (15.3-21.3)

Vika 11 (8.3-14.3)

Vika 10 (1.3-7.3)

Vika 9 (23.2-29.2)

Vika 8 (16.2-22.2)

Vika 7 (9.2-15.2)

Vika 6 (2.2-8.2)

Vika 5 (26.1-1.2)

Vika 4 (19.1-25.1)

Vika 3 (12.1-18.1)

Vika 2 (5.1-11.1)

Vika 1 (29.12.03-4.1.04)

Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.


Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á:

lognid@lognid.is