02.01.2004
Æ, þarf að fara á sjóinn í
dag. Það er alltaf leiðinlegt að fara á sjóinn þegar maður er
búinn að vera lengi í landi, en svo þegar maður er farinn þá er þetta
bara ekkert mál. Þetta eru nú reyndar ekki langir túrar, 4 dagar og
svo fær maður 3 daga frí á milli, þannig að þetta er eiginlega bara
snilld. Að vísu er vinnan hans pabba meiri snilld, en hann vinnur 4 daga
og fær svo 4 daga frí og er heima hjá sér öll kvöld.
Svo næst þegar ég kem heim þá verður bíllinn minn mættur. Óli
Bróðir kemur á honum þegar hann kemur frá Pólandi með fjölskyldunni
sinni. Þá reikna ég með að við bætum myndum og öðru inn á
síðunna hennar Viktoríu.
Þarf svo að kenna Óla og Jolu að
uppfæra. Jolanta þyrfti líka að geta sett upp pólska útgáfu af
síðunni hennar Viktoríu.
Annars
verður fínt að fara á sjóinn þar sem maður er búinn að vera allt of
mikið einn um jólin. Sakna Emilíu (flutt til Kanada) og
er ég því nánast alltaf bara einn heima. Frank bróðir fer nú
reyndar að koma og vera hjá mér eitthvað í vetur, þannig að maður er
ekki alveg einn. Og svo er auðvitað stutt í heimsókn til Palla,
en maður verður örugglega eitthvað í bílskúrnum hjá honum í vetur.
p.s. Tommi commentakerfið fer bráðum að koma á síðunna. Bara smávægilegir tækni erfiðleikar enn í gangi..
01.01.2004
Þá er loksins komið árið 2004 og óska ég öllum gleðilegs árs og þakka ykkur fyrir allt gamalt og gott frá liðnu ári. Það er nú búinn að vera rólegur dagur hjá mér í dag, enda fór ég ekki að sofa fyrr en rúmlega 8 í morgun. Ég og Palli fórum í gærkvöldi til Gumma Snorra, en þar voru Alli & Hildigunnur. Eftir þó nokkra veru þar fór ég í partý til Simma og var þar til 8 í morgun. Ég held að ég hafi verið aldursforseti í þessu partíi og svo líklega Tommi næst elstur. Ég svaf því eitthvað fram eftir degi í dag og er auðvitað á kolvitlausu róli fyrir sjóinn á morgun.

31.12.2004
Nú er sko heldur betur farið að styttast í nýja
árið!!! Það er búið að bjóða mér í áramótasteikina hjá Palla
danska, vini mínum og verð ég þar væntanlega fram yfir
áramótin. Svo er spurningin hvert ferðinni er heitið á eftir.
Það eru örugglega mörg partý í gangi og svo er ball á Kaffi59 (1500kr
inn), og einnig er opið hjá litla vini mínum (Finna)
á Krákunni (frítt inn), og hugsa ég
að Krákan verði frekar fyrir valinu, a.m.k. til að byrja með. Svo er
bara spurning hvort eitthvað þrek verður eftir til að fara í partý á
eftir.
Svo tekur alvaran aftur við 2.jan. kl 16:00 en þá er mæting á
sjóinn og blessað jólafríið búið.
Í gær tókum ég bátinn minn upp og setti hann inn í skúr hjá Palla, þar sem við ætlum að taka hann í gegn í vetur.
Næstkomandi mánudag, 5.janúar 2004 í Valencia, mun Williams F1 liðið
frumsýna FW26 bílinn sinn sem er 2004 árgerð WilliamsF1 BMW keppnisbílsins.
Í verksmiðjum víða um Evrópu eru tæknistjórar annara keppnisliða F1 að leggja loka hönd á gerð 2004 árgerða af keppnisbílum sinna liða, til að tryggja þeim heimsmeistaratitlana í Formula1.
Á sama tíma í dimmri kjallara kompu, í höfuðstöðvum Ferrari í Maranello á Ítalíu er Ross Brawn að vinnu við nýjasta leynivopn Marlboro Scudeira Ferrari liðsins, og það er ekki bíll!
Til að skoða mynd af nýjasta leynivopninu þá smelltu !!!HÉR!!!
29.12.2003
Í dag er hund leiðinlegt veður í Grundarfirði og því er sennilega óráðlegt að fara út úr húsi. Ætli ég verði því ekki bara heima við og á internetinu í dag, vonandi að eitthver skemmtilegur komi í heimsókn.
Núna eru aðeins 70 dagar í næstu Formula1 keppni sem mun fara fram í Ástralíu 9.mars n.k. og því munu keppnisliðin frumsýna 2004 bílanna sína á næstu dögum. Nokkur lið eru búinn að gefa út frumsýningardaga og frumsýningarstaði.
Lið
Dags.
Williams 5 Janúar
(Valencia, Spáni) (staðfest)
Sauber 12 Janúar
(Salzburg, Swiss) (staðfest)
Toyota 17 Janúar
(Cologne, Þýskalandi) (staðfest)
Jaguar
18 Janúar (Barcelona, Spáni) (staðfest)
Ferrari
26 Janúar (Marinello, Ítalíu) (óstaðfest)
Renault 29 Janúar (Palermo,
Sikiley, Ítalíu) (staðfest)
BAR
Febrúar (óstaðfest)
Jordan
Febrúar (óstaðfest)
McLaren
ekkert útgefið, en byrjaðir að prófa bílinn
Minardi
Febrúar (óstaðfest)
Eldra efni hér að neðan:
Vika 2 (5.1-11.1)
Vika 1 (29.12.03-4.1.04)
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: