6.5.2004
Jæja, þá er ég að fara á sjóinn, verð líklega næst við á mánudaginn. Gleymdi að segja hérna frá ævintýrum síðustu veiðiferðar, en það verður bara að koma næst
kveðja.
5.5.2004
Kl. 20:10 Var að fá skemmtilega símhringingu, skipstjórinn var að fresta brottför um 2 1/2 klukkutíma. Slepp við að elda fyrir þessa ands.... á morgun. Svo fór vinur minn Palli danski á sjóinn í gærkvöldi með Gretti SH frá Stykkishólmi. Þeyr lögðu víst netin í Faxaflóanum í dag og eru í Keflavík núna. Ætli þeir fari á Club Casino?
Svo er ég loksins búinn að setja inn restina af myndunum
úr afmælinu hans Simma. Merkilegt hvað bankabókin mín hefur dafnað
vel.
Alveg geta verið meiriháttar fyrirsagnir í
dagblöðunum. Þessa fyrirsögn fann ég í Fréttablaðinu í
gær. Hvað lesið þið út úr þessari fyrirsögn? Segið fyrst
ykkar álit og smellið svo á
fyrirsögnina til að fá alla fréttina.
Eldra efni hér að neðan:
Vika 19 (3.5-9.5)
Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: