11.4.2004
Ég kom loksins heim, seint í gærkvöldi og því munu myndirnar koma inn síðar í kvöld eða nótt. Ég vill bara biðja ykkur afsökunar á biðinni en greinilegt er að sumir eru alveg að fara á límingunum og sárnar manni ummæli nokkura fyrrverandi vina.
p.s. endilega skoðið www.lognid.is/kaldi
8.4.2004
Úfff, þunnur í dag!!!!! Tók fullt af flottum myndum
í gær. Er bara í samningaviðræðum við nokkra um greiðslur fyrir
að myndirnar birtist ekki.
7.4.2004
Er að fara í afmælisveisluna hans Simma og að sögn hans verður það veisla ársins (eða sagði hann aldarinnar?). Svo verður ball á Kaffi 59 á eftir og svo kannski 2. í afmæli partý á eftir. Næsti pistill kemur því líklega ekki fyrr en seinnipartinn á morgun.
Simmi á afmæli í dag og verður veisla hjá honum í
kvöld. Til hamingju með daginn Simmi!!!!
6.4.2004
Það er alveg ótrúlega gaman að lesa Formula 1 fréttir af
stórum formula fréttavefum erlendis. Núna eru þær fréttir hæstar
að framtíð Kimi Raikonen sé rauð, að hann sé að gefast upp á McLaren
og sé við það að skrifa undir samning um að keppa með Ferrari 2006 eða
2007 þegar Michael Schumacker hættir (þá getur Rúnar bróðir farið að
halda með almennilegu liði "Ferrari"). Sagan segir einnig
að Kimi sé ekkert sérlega spenntur að keyra með Montoya sér við
hlið. Svo eru fréttamenn þessa dagana með frekar óþægilegar
spurningar til Montoya eins og t.d. Hvort hann sé að fara til miðjuliðs á
næsta ári (McLaren) og t.d. hvernig hann telur sigurlíkurnar vera á næsta
ári.
Það er hins vegar ekkert nema gaman að vera Ferrari aðdáandi
þessa dagana. Samt gera yfirburðir Ferrari það að verkum að ekki
er eins spennandi að fylgjast með keppninni. Það gætu hins vegar
lið eins og BAR-Honda og Renault bætt það upp að eitthveru leyti með
því að blanda sér verulega í slaginn um 2 & 3ja sætið við Williams
og kanski McLaren.
5.4.2004

Þá er maður loksins kominn í páskafrí! Vorum að
ljúka mjög góðri veiðiferð, vorum með yfir 30 tonn í tæplega tveim
lögnum og förum svo næst á sjóinn 12.apríl kl. 16:00.
Hérna eru nokkur smá vídeó sem ég tók í síðasta túr.
Jónas
skipstjóri að í aðgerð (1,10Mb) Jónas
video
Fjölnir Örn á rúllunni að gogga og blóðga fisk
(2,35Mb) Fjelli
video
Hilmar, Bóndi og Hlynur í lestinni (855Kb) Lest
video
Og nokkrar myndir úr túrnum. Smellið á myndirnar til að fá upp stærri mynd.

Hlynur
og Daníel í aðgerð
Bjarni,
Hreinn, Daníel & Jónas í aðgerð
Jói,
nýliðinn okkar af Gullhólma
Bóndinn,
Hilmar og Hlynur í lestinni
Bjarni,
Hreinn, Daníel & Jónas enn í aðgerðinni
Og
Kjartan Jakob stjórnar skipinu með höndum og fótum
Frábær
viðgerð á háþrýstibyssunni (Ég hélt að Kjartan Gunnarsson gerði bara
svona)
Eldra efni hér að neðan:
Vika 15 (5.4-11.4)
Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: