28.3.2004 kl. 16:00

Þá er orðið stutt í brottförina á sjóinn.  Ég fer kl. 18 og verð væntanlega heima fyrir mánaðarmót, þannig að hér verður ekkert skrifað fyrr en ég kem heim aftur.  Ég bið því bara að heilsa.

Hérna læt ég krækju á einn skemmtilegan og verulega jákvæðan texta eftir Jónas Árnason af plötunni Þjóðsaga með Pöpunum.

28.3.2004 kl. 09:00

Í nótt gerðist frekar undarlegur atburður, Lognið fór ásamt Bjarna og Bjössa Bjarnabróður til Ólafsvíkur á ball með Pöpunum.  Þetta er einungis merkilegt vegna þess að Lognið ákvað að skella hlutunum í kæruleysi og hætti við að detta í það og í staðin var hann ökumaður í þessari frægðar för.  Já, þetta er alveg satt!  Svo hittum við nokkra frægðar menn á ballinu og mætti þar helst nefna, Finna Nilla, Vigga Runna, Dabba Hlíðkvist (sem á afmæli í dag) og auðvitað Magga Jobba sem var alveg að fíla Papana í ræmur.  Eftir ballið var ég stöðvaður af lögreglunni (áður en ekið var af stað), og beðinn um ökuskýrteini sem var ekki til staðar og því næst beðinn um að blása í áfengismæli.  Þar sem ég hafði viðhaft þvílíkt kæruleysi (á laugardagskvöldi) og ekki drukkið áfengi varð niðurstaða öndunarsýnismælingarinnar auðvitað 0.  Svo fórum við í þokkalega fjölmennt partý í Ólafsvík og stoppuðum þar í c.a. 2 klst.  Þegar ég svo var að fara þaðan stöðvaði lögreglan mig aftur í umferðartékki.  Svo virðist sem lögreglan í Ólafsvík sé alveg að vinna sína vinnu vel í eftirliti.  Svo þegar til Grundarfjarðar var komið og stöðvað fyrir utan heimili fyrrnefndra bræðra og ökutækið skilið eftir í gangi fyrir utan, sá ég bifreið lögreglunar í Grundarfirði aka frá lögreglustöðinni.  Eftir c.a. 3 mínútna stopp var ekið aftur af stað og tekinn smá rúntur um Grundarfjörð varð ekkert vart við lögregluna í Grundó og því greinilegt að þar er ekki virkt eftirlit.  Auðvitað eru Grundfirðingar mikið betra og löghlýðnara fólk en Ólsara og því kannski ekki eins mikil þörf á löggæslu hérna.  En eitt er þó víst að ég þarf að fara skila inn umsókn um nýtt ökuskýrteini þar sem það gamla týndist fyrir jólin.

En þar sem Davíð Hlíðkvist Ingason á afmæli í dag vill ég óska honum til hamingju með það.


Þetta lið var allt á fyrrnefndu Papa-balli

 

27.3.2004

Þá er allt orðið klárt fyrir línuveiðarnar.  Búið að setja allt línudraslið um borð, taka kör, ís, beitu og kost.  Við höfum sennilega sett Íslandsmet í hve fljótir við vorum að skipta yfir af netunum yfir á beitingarvéla línu.  Ef veðrið væri ekki svona slæmt á miðunum værum við líklega að skríða út um kl. 20 í kvöld.  En þetta mun svo sem bara vera ágætt að hafa allt klárt og geta farið á ball með Pöpunum í Ólafsvík í kvöld og hafa ekki áhyggjur af öðru en mæta um borð annað kvöld.

Svo mæli ég eindregið með að fólk (sérstaklega Grundfirðingar), skoði föstudags slúðrið hjá Ruglukollinum en það er ótrúlegt hvað hann er duglegur að grafa upp fréttir sem áttu ekki að fara lengra.  Svo hugsa ég að ég eigi eftir að verða mjög ríkur þegar ég hef farið í höfundarréttar mál við hann vegna óleyfilegra myndanotkunar.  Ég er þegar búinn að ráða mér lögfræðing sem telur að hægt sé að hafa töluvert mikla peninga af Ruglukollinum eða hans nánustu.  

26.3.2004

Í gærkvöldi mætti hressari hluti áhafnarinnar á Grundfirðingi heim til Dadda, stýrimanns til að fagna vertíðarlokum.  Var mjög gaman hjá okkur og var yfirvélstjórinn um tíma í sérlega miklu stuði.

 


Róbert, Bjarni & Fjélli

Daddi & Róbert

Bjarni í bana stuði (eins og oft áður)

Bjarni (eftir breytingar) & Fjélli

25.3.2004

Þá er búið að blása af þessa blessuðu netavertíð.  Við tókum upp í dag, komum í land og tókum allt netadraslið í land og þrifum skipið.  Þannig að það eru vertíðarlok í kvöld.  Svo verður frí á morgun og á laugardagskvöld er áætlað að halda til veiða með línu.  Við erum auðvitað með beitingarvél ef þið vissuð það ekki. Aflatölur dagsins eru enn meira leyndarmál en í gær.


Daddi, (Kjartan Jakob) stýrimaður að störfum við þrifin.



Nafni úðaði ónefndu undra efni á millidekkið til að gera það fallegra og hvítara.

24.3.2004

Í dag var opnaður vefur Bæringsstofu í Grundarfirði og hvet ég alla Grundfirðinga til að skoða þennan vef.  Óska aðstandendur vefs Bæringsstofu aðstoðar fólks við að skrá inn upplýsingar um myndir á vefnum.

Af mér er svo sem ekkert að frétta.  Ég er bíllaus í augnablikinu þar sem ég lánaði Palla danska vini mínum bílinn minn í nokkra daga.

Aflafréttir dagsins verða ekki gerðar opinberar þar sem þær teljast viðkvæmar upplýsingar.

  Aflinn í mars frá 1-19 á Excel skrá

23.3.2004

Þá er víst farið að styttast í að við hættum á netum og förum aftur yfir á línu.  Við hættum víst fyrr en upphaflega var ákveðið og tökum upp 30.mars.  Helv..... vitleysa þar sem ég er að grennast um 4-5kg á mánuði á netunum án þess að spá í mataræðið.  Ég hins vegar var að þyngjast um 2kg á mánuði á línunni, einnig án þess að hugsa um hvað ég set ofaní mig.  En eins og sagði í laginu um hann Munda, þá fór hann aftur á línu og aftur á net.

Svo sá ég merkilega spurningu í auglýsingu frá Landsbankanum og vill endilega heyra ykkar álit.  Spurningin var svona:  Ef lífið er ferðalag, er þá gert ráð fyrir 2 fullorðnum og tveim börnum?

22.3.2004

Dagurinn í dag byrjaði snemma.  Við fórum á sjóinn á miðnætti til að leggja netin og vorum komnir aftur heim fyrir kl. 8 í morgun.  Svo er maður eiginlega bara búinn að vera í tölvunni, rúnta smá og prófa myndavélina nýju sem Ruglukollurinn í BT seldi mér.


Þetta mun vera Ruglukollurinn einmitt í vinnunni að reyna selja mér eitthvað.


Eldra efni hér að neðan:

Vika 13 (22.3-28.3)

Vika 12 (15.3-21.3)

Vika 11 (8.3-14.3)

Vika 10 (1.3-7.3)

Vika 9 (23.2-29.2)

Vika 8 (16.2-22.2)

Vika 7 (9.2-15.2)

Vika 6 (2.2-8.2)

Vika 5 (26.1-1.2)

Vika 4 (19.1-25.1)

Vika 3 (12.1-18.1)

Vika 2 (5.1-11.1)

Vika 1 (29.12.03-4.1.04)

Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.


Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á:

lognid@lognid.is