21.3.2004
Þá eru myndirnar úr afmælinu komnar inn. SMELLA HÉRNA eða velja myndasöfn í valmyndinni vinstrameginn á síðunni.
Jæja, þá er maður kominn úr Reykjavík. Það var nú rosalega gaman í afmælinu hjá Haraldi og munu myndir frá því koma síðar. Svo fórum við á skemmtistað sem heitir "Klúbburinn" og er rétt við Gullinnbrú. Þar var mikið af fráskyldum fertugum kellingum sem slógust um strákana. En þetta var skemmtilegur hópur af fólki sem var úr afmælinu og skemmtum við okkur innan um eldra fólkið. Svo hitti ég Hildi Gunnarsdóttur á Klúbbnum og einnig var þar staddur Óli Björn Gunnarsson, skipstjóri á Hreggnesi SH.
Ég fór í gær í BT
Skeifunni og hitti þar fyrir ruglukollinn
Tomma en hann seldi mér Sony 5M pixla stafræna myndavél og auðvitað
fékk ég afslátt þar sem Tommi
er svo góður drengur. Ég tók auðvitað slatta af myndum í
afmælinu og á Klúbbnum og munu þær birtast hér fljótlega.
20.3.2004
Haraldur Róbert Magnússon
er 30 ára í dag!!!! Til hamingju með daginn Haraldur
Svo
má til gamans geta að sonur Haraldar, Magnús varð 2ja ára, 18.mars s.l.
Svo þurfti ekki að spyrja um gæði
Ferrari bílana í tímatökum morgunsins, Schumi náði ráspól og
Barri ræsir 3. Svo eru McLaren druslurnar en í eitthverum erfiðleikum
með vélaraflið. Mark Webber var að gera góða hluti og endaði
milli Schuma & Barra og tekst honum þá kannski að rífa upp Jagúar
nafnið til vegs og virðingar. Hitt liðið mitt, Sauber (með
vélar) enduðu í 11. & 12. sæti í tímatökunni og er það a.m.k.
einu sæti of neðalega, en þeir bæta nú vonandi úr því í
keppninni. Svo ræsa 4. Montoya (Williams), 5. Kimi (McLaren), 6. Button
B.A.R.), 7. Ralf (Williams), 8.Trulli (Renault). Svo ætlaði Alonso (Renault)
sér of mikið og var kominn með mjög góðan tíma fyrir 2. sætið en þá
snéri hann bílnum út úr brautinni og verður því að ræsa aftastur í
fyrramálið ásamt Sato (B.A.R.). Það verður því ekki einungis spennandi
að fylgjast með fremstu bílum í ræsingunni á morgun heldur 2. öftustu
bílunum líka. Líklega vinna þeir sig upp um nokkur sæti í
ræsingunni. Ef áræðanleikinn er til staðar í
Ferrari bílunum í hitanum í Malasíu þá er hætt við að
Ferrari vinni titilinn snemma í ár og tímabilið verði endursíning á
2002.
19.3.2004
Útlitið með fiskiríið var ekki gott í dag þegar við
vorum búnir að draga 7 af 12 trossum og aðeins búnir að fá 1,5-2tonn, en
þegar búið var að draga allt enduðum við með 12-13tonn. En annars
er ég bara ánægður með daginn og gott er að vera kominn í
helgarfrí. Ég er að spá í að kíkja til Palla danska í kvöld og
bjóða honum bjór, en á morgun ætla ég til Reykjavíkur í 30 ára
afmæli til Haraldar. Einnig ætla ég að koma við á skrúfu
deginum í Vélskólanum og skoða þar
tækin og skólan. Svo þarf auðvitað að útrétta eitthvað smotterí.
18.3.2004
Á morgun tökum við upp netin og förum í helgarfrí. Þá er á dagskránni að heimsækja spilltu höfuðborgina okkar. Þar ætla ég að fara í afmæli til Haraldar sem á afmæli á laugardaginn. Svo gæti nú farið að maður kíkti á næturlífið í miðborginni.
Í dag voru aflabrögð þau lélegustu hingað til á
vertíðinni, að undanskyldum einum sérlega stórum fisk. Já, núna
er Flipper dauður, hann flæktist í netin hjá okkur og dó. Því var
ekki annað til ráða en búta hann niður í matinn.
Reyndar fengum við
fyrr í mánuðinum annan óalgengan fisk og mun það hafa verið Sandhverfa
.
Sandhverfan
sem við veiddum á Grundfirðingi 5.mars s.l.

Lognið
með sandhverfuna
15.3.2004
Afli 11 tonn í dag og er það talsvert betra en síðustu
daga. Við fengum alla vega ágætan afla í lænunum sem við höfðum
af Ársæli enn eitt árið.
Eldra efni hér að neðan:
Eldra efni frá árinu 2003 birtist sem valmynd vinstrameginn.
Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á: