14.3.2004

Í kvöld fór ég í heimsókn til Viktoríu Ásu en hún á einmitt 2ja ára afmæli í dag!!!  Svo skiluðum við pabbi skattaskýrslunni hans á netinu og er framundan hjá mér næstu daga að skila a.m.k 4 skýrslum í viðbót.


Svo á ég í vandræðum með að lesa þennan texta hér að ofan???  Hjálp!!!

13.3.2004

Þá erum við farnir úr brúninni og komnir á Flákan.  Afli dagsins var skelfilegur og hefði jafnvel ekki verið minna að hafa þótt Bjössi Didda hefði verið með.  Bent bróðir er að spila á stórtónleikum með Dixi-bandinu og er annað band einnig að spila þar í kvöld.  Auðvitað mæta mamma, Friðjón, Óli og Jóla á tónleikana, en við Frank þurfum hins vegar að fara vinna í fyrramálið og förum því snemma að sofa.  Ég fékk svo skemmtilega heimsókn í dag þegar Haraldur og Hrafnhildur kíktu til GrundóHaraldur var að skoða sína æskuslóð og heimsækja Lognið, sem býr í Grundarfirði.  Svo er Simmi IDOL kominn með nýja bloggsíðu á folk.is.


Hrafnhildur, eiginkona Haraldar

Haraldur Róbert & Lognið Stormsson

12.3.2004

Það var ekki mikill aflinn í dag og því ekki orði meira um það.  Við Fjelli fórum í ljós og sauna í kvöld.  Svo er mamma og Friðjón komin til Grundarfjarðar og verða hérna um helgina.  Svo á uppáhaldsfrænka mín afmæli um helgina, Viktoría Ása.

11.3.2004

Lítið búið að vera af uppfærslum á síðunni minni í vikunni.  Ég rakst á stórskemmtilega síðu á netinu sem ég ætla að setja krækju á hérna.  Síðan heitir því snilldar nafni "Grundargata sex.tk"  Ég vill reyndar vara fólk við efni síðunnar því hún er ekki fyrir viðkvæmar sálir.  VARÚÐ - HÆTTULEG SÍÐA!!!  Þessari blessuðu síðu er haldið úti af verulega rugluðum Hólmurum sem öfunda okkur Grundfirðinga af fallegum götunöfnum.  


Eldra efni hér að neðan:

Vika 11 (8.3-14.3)

Vika 10 (1.3-7.3)

Vika 9 (23.2-29.2)

Vika 8 (16.2-22.2)

Vika 7 (9.2-15.2)

Vika 6 (2.2-8.2)

Vika 5 (26.1-1.2)

Vika 4 (19.1-25.1)

Vika 3 (12.1-18.1)

Vika 2 (5.1-11.1)

Vika 1 (29.12.03-4.1.04)

Vika 52 (22.12-28.12)

Vika 51 (15.12-21.12)

Vika 50 (8.12-14.12)

Vika 49 (1.12-7.12)

Vika 48 (24.11-30.11)

Vika 47 (17.11-23.11)

Vika 46 (10.11-16.11)

Vika 45 (3.11-9.11)

Vika 44 (28.10-02.11)

Vika 43 (20.10-26.10)

Vika 42 (13.10-19.10)

Vika 41 (6.10-12.10)

Vika 40 (29.09-5.10)

Vika 39 (22.09-28.09)

Vika 38 (15.09-21.09)

Vika 37 (8.09-14.09)

Vika 36 (1.09-7.09)

Vika 35  (25.08-31.08)

Vika 33-34 (11.08-24.08)

Júlí 2003

Gömul forsíða

Eldri forsíða


Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á:

lognid@lognid.is