7.3.2004

Og það þurfti ekki að spyrja að því að Ferrari, Schumi og Barri skiluðu sér í mark í topp sætunum.  Alanso var svo þriði en ég var ekki alveg ánægður með Sauber liðið.  Massa dansaði svolítið á brautinni og endaði með bilaða vél en Fissi kláraði í 10. sæti.  Það var samt skemmtilegasti framúraksturinn þegar Felipe Massa tók fram úr Kimi Raikonen.  Massa á eftir að gera góða hluti en Sauber hefur ekki eins góðan loftflæðipakka né fjöðrun eins og Ferrari þótt þeir hafi sömu vélina.

p.s. vakna líklega ekki snemma í dag þar sem ég fer að sofa kl. 06:00

4.3.2004

Eftir að við lönduðum 25tonnum í kvöld, þá erum við búnir að landa 62tonnum í vikunni og vantar því aðeins að landa 8 tonnum á morgun til að hafa 70 tonna viku.
En í dag voru æfingar í Ástralíu fyrir formúlu helgarinnar.  Auðvitað settu Ferrari menn nýtt brautarmet, aðeins eftir 4 hringi og er ég sannfærður um að Ferrari eigi eftir að koma vel út úr tímatökunni sem byrjar kl. 03.00 í nótt.

3.3.2004

Í dag fengum við 15 tonn, megnið af fisknum var í 5 trossur.  Svo virðist vera að þegar kokkurinn eldar fisk þá fáum við fisk í netin.  Þar sem við vorum frekar seint í landi í dag nenni ég ekki að setja inn fleiri myndir frá grímuballskvöldinu.
svo er blessuð formúlan að byrja um helgina og verður væntanlega gaman að sjá rauðan FIAT vinna keppnina.

2.3.2004

Hehehe loksins er ég búinn að setja inn hluta af myndunum frá grímuballinu, hinar myndirnar koma seinna.  Ath. að það er hægt að setja athugasemdir við hverja mynd fyrir sig og eru sumar auðvitað athyglisverðari en aðrar. Til að komast í myndirnar veljið þá myndasöfn í valmyndinni vinstramegin eða smellið á myndina af Poul 1 & 2.
  
p.s. 10 tonna afli í dag.

1.3.2004


Í dag eru 15 ár síðan bjór var leyfður á Íslandi.  Þá var drukkið mikið af Löwenbrau, sem var bruggaður á Íslandi.  Núna drekkur líklega enginn þennan bjór þar sem seldar eru margar mikið betri tegundir.

En annars þakkir til Simma fyrir að senda mér nokkrar flottar myndir af grímuballinu.


Eldra efni hér að neðan:

Vika 10 (1.3-7.3)

Vika 9 (23.2-29.2)

Vika 8 (16.2-22.2)

Vika 7 (9.2-15.2)

Vika 6 (2.2-8.2)

Vika 5 (26.1-1.2)

Vika 4 (19.1-25.1)

Vika 3 (12.1-18.1)

Vika 2 (5.1-11.1)

Vika 1 (29.12.03-4.1.04)

Vika 52 (22.12-28.12)

Vika 51 (15.12-21.12)

Vika 50 (8.12-14.12)

Vika 49 (1.12-7.12)

Vika 48 (24.11-30.11)

Vika 47 (17.11-23.11)

Vika 46 (10.11-16.11)

Vika 45 (3.11-9.11)

Vika 44 (28.10-02.11)

Vika 43 (20.10-26.10)

Vika 42 (13.10-19.10)

Vika 41 (6.10-12.10)

Vika 40 (29.09-5.10)

Vika 39 (22.09-28.09)

Vika 38 (15.09-21.09)

Vika 37 (8.09-14.09)

Vika 36 (1.09-7.09)

Vika 35  (25.08-31.08)

Vika 33-34 (11.08-24.08)

Júlí 2003

Gömul forsíða

Eldri forsíða


Ef þú hefur áhuga á að hafa samband við mig þá er hægt að senda tölvu-póst á:

lognid@lognid.is