Þjóðsaga (af Þjóðsaga með Pöpunum)

 

Við treystum hvern hnút og við strekkjum hvert stag,

já allt í lagi,

því að ankerum léttum við aftur í dag,

og höldum til hafs á ný.

 

við undum hér glaðir við drykkju og dans,

já allt í lagi,

með söknuð í hjarta við lítum til lands á ný,

og höldum til hafs á ný.

 

Viðlag:

Það er allt í lagi, já allt í lagi,

Því sólin hún skín,

og í seglunum hvín,

og við höldum til hafs á ný.

 

Já það eru konur í þessari höfn,

já allt í lagi,

og léttlindar sumar ég nefni engin nöfn,

og við höldum til.

 

Þær hafa okkur elskað með heiðri og sæmd,

já allt í lagi,

en nú er það búið því buddan er tæmd,

og við höldum til hafs á ný.

 

Viðlag

 

Með kossi við urðum að kveðja þær fljótt,

já allt í lagi,

það faðma þær eitthverir aðrir í nótt,

og við höldum til hafs á ný.

 

Já, svona er lífið og sama er mér,

já allt í lagi

því konur og vín má fá víðar en hér,

og við höldum til hafs á ný.

 

Viðlag:

Viðlagið aftur.